Þingvallastjórnin skal hún heita.Samfylkingin mun verða trú hugsjónum jafnaðarmanna.

Þingvallastjórnin mun verða full sköpuð innan þriggja daga,eru nýjustu innanveggja fréttir frá samningum flokkanna,sem ganga vel.Sú ríkisstjórn,sem nú kveður fær falleinkun á flestum sviðum efnahagsmála,verðbólgu,háa vexti með tilheyrandi verðbótum,útflutningsgreinar á heljarþröminni vegna sterkrar krónu,velferðakerfið með þúsundir sjúklinga á biðlistum, jafnréttismál í kyrrstöðu og kvótinn heldur áfram að rústa litlu sjávarbyggirnar.Það verður mikið verk að vinna að hreinsa upp eftir þessa ríkistjórn.Þar treystum við best Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur form.SF,hún sýndi hvað í henni bjó ,sem borgarstjóri Reykjavíkur í 12.ár.Vonandi hressist  Sjálfstæðisfl.að fá að njóta samstarfs við hugsjónaríka jafnaðarmenn. 

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Ha ekki Baugsstjórn

leeds (IP-tala skráð) 19.5.2007 kl. 23:00

2 Smámynd: Inga Lára Helgadóttir

Þingvallarstjórnin, sammála því virðulegt og flott heiti á nýrri ríkisstjórn. Finnst þetta með Baugsstjórnina alveg mjög þreytandi húmor.

Inga Lára Helgadóttir, 19.5.2007 kl. 23:10

3 Smámynd: halkatla

já vá, besta sem mér datt í hug var skólaballstjórnin, en þetta hljómar fallega og er virðulegt. Lifi vonin

halkatla, 19.5.2007 kl. 23:12

4 Smámynd: Guðrún Magnea Helgadóttir

Sæll Kristján. Ég hef áhyggjur af hvað verður ef krónan fellur og allir þeir sem fjárfestu í henni selja krónubréfin sín að verðmæti núverandi gengis um 700 milljarðar króna.

Hvernig stendur gjaldeyrisforði okkar þá nema við tökum lán í erlendum bönkum til endurfjármögnunar. Þá enn og aftur aukast skuldir þjóðarinnar... Erlendu skuldirnar sem núverandi ríkisstjórn hefur hrósað sér sem mest yfir að hafa minnkað í stjórnartíð sinni en eru að mínu mati faldar í krónubréfunum

Guðrún Magnea Helgadóttir, 20.5.2007 kl. 15:34

5 Smámynd: Kristján Pétursson

Krónan er ekki á vetur setjandi,hún er handónýtur gjaldeyrir.Ef fer sem horfir,verður krónan aðeins notuð af hinum almenna neytenda innan 2-4 ára. Þetta er hættuástand Guðrún,sem er ótrúlega lítið rætt.Hvað með alla, sem hafa verið að taka húsnæðislán í erlendum myntum?Við  gætum hæglega þurft að taka lán til að endurfjármagna gjaldeyrisforðann og í hvers konar skuldafen erum við þá dottinn?

Kristján Pétursson, 20.5.2007 kl. 16:01

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband