Vindlingastubbar þekja gangstéttir og götur fyrir framan veitinga - og skemmtistaði.

Ríkissjóður græðir árlega tugi miljarða á sölu vindlinga.Ríkisstjórnin setur lög um að banna vindlinganotkun innanhús á veitinga - og skemmtistöðum og almennum vinnustöðum.Ríkisstjórnin setur reykingafólki engar reglur utanhús um að henda vindlingastubbum nánast hvar sem er.Gangstéttir og götur við veitinga - og skemmtistaði eru alþaktar vindlingastubbum.Oft má sjá ungmenni taka upp af götunum hálfreykta vindlinga og reykja þá upp til agna.Hér er því líka um að ræða mikinn sóðaskap og jafnframt verulega smithættu.

Ég tel að ríkisvaldið hafi gengið fram í þessum málum af tillitsleysi og yfirgangi við reykingafólk.Meðan vindlinganotkun er leyfilegur vímugjafi ber valdhöfum ríkisvaldsins að umgangast neytendur af tillitssemi og virðingu.Reykingafólk á ekki að þurfa að standa oft hundblautt utanhús við reykingar eins og einhverjir útigangsmenn.Það á að vera hverjum vinnuveitenda í sjálfsvald sett hvort hann setur um aðskilið pláss fyrir reykingafólk.

Ég reyki ekki og er því ekki neinn  talsmaður reykingafólks.Best væri að banna innan 3 - 5 ára tímabils allar tóbaksreykingar í landinu.Reyndar ætti Heilbrigismálastofnun Sameinuðu Þjóðanna að banna alla framleiðslu og neyslu á tóbaki innan ákveðins árafjölda,enda löngu vitað að skaðsemi reykinga er stærsti heilbrigðisskaðvaldur  í víðri veröld.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðrún Magnea Helgadóttir

Islendingar eru verstu sóðar allra þjóða... Þeir henda hverskonar umbúðum undan neysluvöru þar sem þeir standa. Sígarettustubbar, tyggjóklessur, umbúðir af samlokum, flöskur, djúsfernur, bara all sem á heima í ruslatunnum landsmanna er hent á víðavangi. Göngustígar eru þaktir af þessu rusli. Svo ekki sé minnst á nýlega yðju unglinga, sem er að hrækja út og suður í tíma og ótíma.

Guðrún Magnea Helgadóttir, 17.8.2007 kl. 16:33

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband