Það er gaman að geta gefið mörgum mikið - Snjótittlingar leita vina í mannheimi.

Hef undanfarna daga verið svo lánsamur að á vegi minum hefur verið fjöldi snjótittlinga.Það er afskaplega gaman að gefa þessum litlu fallgegu vinum okkar,sem gleðja okkur með nærveru sinni þegar von er á vondum veðrum.Þeir eru bestu veðurfræðingar ,sem völ er á ,þurfa engin tól eða tæki til að sjá fyrir kuldaköst með fleiri daga fyrirvara.Ég er svo lánsamur að  hafa alist upp í sveit,bændur tóku þessum litlu spámönnum sínum afar vel og þeir fengu gott í gogginn í staðinn.

Hafið fuglamat eða brauð með ykkur þegar þið vitið að þeir eru komir í heimsókn.Þeir muna eftir ykkur og koma aftur og aftur þegar kólnar í veðri.Þeir eru taldir meðal bestu flugfugla í heimi,það er unun á að horfa hversu þétt og hratt þeir fljúga,engir árekstar.Þeirra umferðarkerfi er innbyggt í hvern og einn eins og veðurfræðin líka.Það er ljóst að þessir litlu snillingar eru á mörgum sviðum okkur mönnum fremri.Það er sannkallað augnayndi að horfa á fugla,sjá hvernig þeir nota frelsið og víðáttuna á landi,lofti og legi.Það er hægt á margan hátt að hrífast af fegurð náttúrunnar og tign himinsins,en í mínum hugarheimi eru fuglarnir þar í efsta sæti.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Kristján Pétursson

Svo þú farir ekki lengur mannavilt í þessu máli,þá staðfesti ég líka vegna annara sem kunna að hafa ranghugmyndir í þessu máli,að ég kom ekki að gerð myndarinnar,né hafði ekkert með að gera rannsókn á þeim sem sakfelldir voru í Geirfinnsmálinu ,né þeirra,sem saklausir sátu í gæsluvarðhaldi.Þetta er allt skjalfest í Geirfinnsmálinu og hverjir komu að rannsókn málins.Ég hef því ekki  skaðað mannorð nokkurs manns í þessu máli.

Óska þér alls hins besta á komandi ári.Komdu fram í dagsljósið undir nafni og láttu ljós þitt skína.

Kristján Pétursson, 30.12.2007 kl. 22:22

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband