Hættið þessum vandlætingum um Spaugstofuna - Þeir sýnilega hittu í mark.

Þeir eru ekki aðeins góðir gleðigjafar,þeir eru líka á sinn hátt hárbeittir gagnrýnendur.Þessi spuni þeirra nær nánast öllum hæðum og lægðum,en lognmollan er víðs fjarri.Hér eru á ferðinni bestu grínleikarar landsins,fjölhæfni þeirra,hugmyndflug og  skopskin er nánast óendanlegt.

Þeir eru búnir að skemmta okkar í tvo áratugi og hafa mest áhorf allra.Það er ekki góð byrjun hjá nýja borgarstj.að væla undan þeirri meðferð,sem Spaugstofan tileinkaði honum.Hann fékk mikla athygli enda svo sannarlega til hennar unnið að verða borgarstjóri með 6527 atkvæðum.Sama gilti um Björn Inga og Vilhjálms. Þessir þrír menn hafa verið aðalleikendur á hinu pólutíska sviði undanfarna daga,frammistöða þeirra er lýðum ljós.Spaugstofumenn þurftu því að leggja sig alla fram að toppa þeirra eigin aulaskap.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðrún Magnea Helgadóttir

Spaugstofan tók aldeilis vel á borgarvldaráni Vilhjálms með aðstoð Ólafs í spaugstofunni á laugardaginn..Það er fátt sem getur toppað þennan þátt.

Guðrún Magnea Helgadóttir, 29.1.2008 kl. 23:47

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband