Tímabært að hefja mótmæli á Austurvelli gegn verðtryggingunni og krónunni.

Ekkert heyist markvert frá núverandi ríkisstjórn um aðgerðir gegn verðtryggingunni og myntinni.Hún virðist jafn úrræðalaus og sú fyrri.Eintómt kjaftæði og blaður,engar úrlausnir.Heimilin og fyrirtækin bíða,þau eiga enga undankomuleið nema yfirgefa landið.Engar úrlausnir um aðgerðir eru í sjónmáli hjá ríkisstjórninni nema lengja skuldahalann eða frysta inn í framtíðina.

Þjóðin verður að hefja mótmæli á ný og vonandi kemur þá íhaldið til liðs við búsáhaldabyltinguna og komið yrði þá á fót utanþingsstjórn.Þolinmæði þjóðarinnar er á þrotum,hún gefur ekki þessum úrræðalausu flokksþrælum mikið lengri tíma.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Gunnar Þór Ólafsson

Sæll Kristján

Það er dæmalaust hvað fólkið og heimilin eru dregin á asnaeyrunum í þessu máli.

Því er haldið fram að lífeyrissjóðir og aðrar fjármálastofnanir standi ekki af sér breytingar á verðtryggingu svo þá er bara eitt til ráða,gera það upp við sig og það þarf þjóðin að gera annað hvort lifir fólkið og kemst af eða lífeyrissjóðirnir og svari nú hver fyrir sig.

Því niðurstaðan verður alltaf sú sama ef ekki verður gerð mikil og varanleg  breyting á þessu ástandi verður landflótta í stærri stíl en nokkurn grunar og hvar verða lífeyrissjóðirnir staddir þá,með útgjöld af okkur gamlingjunum,sem ekki geta flúið land  og litlar sem engar tekjur,ég er ekki í nokkrum vafa um mína afstöðu.

Svona í framhjáhlaupi hvað ætli elsta fólkið sem kallast V-Íslendingar hafi verið gamalt þegar það yfirgaf Ísland?

Gunnar Þór Ólafsson, 12.2.2009 kl. 16:35

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband