Verðtryggingin grundvallast á innbyggðum meinsemdum kapitalista

Verðtryggingin er eins og ólæknandi krabbamein,hún stækkar stöðugt höfuðstól lána og gerir íbúðareigendum ókleyft að standa í skilum og selja sínar fasteignir.Fyrir þetta ástand hefur um 40% þjóðarinnar orðið að  líða og öll þjóðin verður með einum aða öðrum hætti þátttakendur í þessari endalausu fífl - og auðhyggju.

Nú loksins er ríkisstjórnin orðin hrædd við afleiðingar aðgerðarleysis og boðar jafnframt aðgerðir um næstu mánaðarmót.Rætt er um að launavísitalan komi í stað  neysluvísitölu við viðmiðun á greiðslu íbúðarlána og afborgun  miðist við tímamörk fyrir bankahrunið.Hins vegar er reynt af ríkisstjórninni og stjórnarandstöðunni að ná saman um niðurstöður um aðgerðir gegn verðtryggingu og lækkun höfuðstóla lána.

Íslandsbanki býður nú óverðtryggð íbúðarlán,sem gætu orðið upphaf að heilbrigðum viðskiptum,en þá verður jafnframt að koma til lækkun á verðbólgu  og afnám verðtryggingar.Nú verðum við öll að spyrna við fótum og sýna löggjafarvaldinu að ekki verður lengur dregið pólutískt myrkur yfir höfuð manna.Við verðum að  efla frelsið,heiðarlegar rökræður og skynsamlega gagnrýni. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband