Guðmundur Steingrímsson sýndi örugga framkomu og ferskan blæ.
9.10.2007 | 23:10
Var að hlusta á umræður úr þingsal.Þar var þá kominn okkar vinsæli bloggari Guðmundur Steingrímsson varaþingm.Samfylkingarinnar. og fjallaði um frumvarp VG um rannsóknir á einka - og markaðsmálum o.fl.Vildi flutningsmaður VG Ögmundur Jónasson að stöðvaðar væru allar meiriháttar framkvæmdir þangað til niðurstöður lægju fyrir.Rannsóknarnefnin væri skipuð fulltrum frá öllum þingflokkunum og aðilum vinnumarðaðarins og BSRB.
Guðmundur vildi hins vegar að slíkar umræður væru stöðugar í þinginu ef tilefni væri til og þingnefndum yrði gert mögulegt að fá sérfræðingaaðstoð til að rannsaka umdeild mál.Benti m.a.í því sambandi á tilurð og hina umdeildu stofnun KB banka á sínum tíma.
Guðmundur kom vel fyrir var öruggur í framkomu og skilgreindi vel sitt mál.Hann er sannkallaður happafengur fyrir Samfylkinguna,svo er Gummi svo skemmtilegur.
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.