Hvítflibbar frjálshyggjunnar mótmæla á Austurvelli.
28.8.2009 | 20:46
Nú eru það mest svartklæddir hvítflippar sem hafa tekið að sér að mótmæla stjórnarstörfum ríkisstjórnarinnar.Menn sem áður baktryggðu sig hjá valdhöfunum sem fínir menn berja nú saman skeiðum pottum og pönnum.Þarna mátti sjá heimsk trúfífl eins og fyrrverandi þingmenn og bankastjóra,sem hafa dregið pólutískt myrkur yfir höfuð varnarlausra manna.
Það setur að manni nábít og böggul fyrir brjóst að horfa yfir þennan hvítflippa hóp,reyna með þessum hætti að losna undan afleiðingum verka sinna.Þegar frjálshyggju kapitalistinn er búinn að leggja undir sig Austurvöll með bareflum búsáhaldabyltingarinnar þá gæti hæglega verið að þeir væru farnir að svíða undan sinni eigin rangsleitni.
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.