Verðbólgan heldur áfram með auknum þunga -Sú mesta í 17.ár.
7.9.2008 | 15:23
Var ekki búið að ákveða fyrir nokkrum mánuðum að stofna til þjóðarsáttar um úrlausnir í efnahagsmálum ? Ekkert heyrist frá ríkisstjórninni, ASÍ eða öðrum aðilum vinnumarkaðarins.Staðfestir þögnin að ekkert sé verið að vinna að þessum málum.Það eina sem heyrist frá forsætisráðhr.að verið sé að vinna við að aðstoða bankana,en ekki orð um verðbólguna, okurvextina,verðtryggingar,afkomu heimilanna og hina handónýtu krónumynt okkar.Hvers á þjóðin að gjalda á hún ekki rétt á að fá aðgerðaráætlun ríkisstjórnarinnar í efnahgsmálum þ.e. staðreyndir málsins á borðið ?Ég held að farsælast væri fyrir Sjálfstæðisfl.að skipta um formann,við verðum að hafa sýnilega forustu í ríkisstjórn með skilvirkan vegvísir fyrir framtíðina.Sé miðað við síðustu Gallup skoðanakönnun er Sjáfstæðisfl.með 32 % kjörfylgi,en fengi um 3 - 4 % minna upp úr kjörkössunum,sé miðað við alþingiskosningar.
Nú standa ekki nema rúm 50 % kjósenda á bak við ríkisstjórnina samk.skoðunarkönnun,en voru um 80% í upphafi stjórnarinnar.Ríkisstjórnin uppsker eins og hún sáir,það er alveg augljóst á þessum tölum.
Samfylkingin ber náttúrlega pólutíska ábyrgð líka á óbærilega aðgerðarleysi ríkisstjórnarinnar,það er sorglegt að sjá hana halda uppi bágbornum röksemdum fyrir aðgerðarleysi forsætisráðhr.Ingibjörg Sólrún ætti strax að koma saman aðgerðrhópi með aðilum vinnumarkaðarins,BSRB og ríkisstjórnarinnar um úrlausn efnahagsmála.Þolinmæði fólks er þrotin,verðtryggingar húsnæðismála á meðalháum lánum er í dag 1,6 milj.kr.á ári,sem bætist ofan á höfuðstól lánanna.Geir og Ingibjörg ættu að horfa í augu unga fólksins,sem er að reyna að eignast sína fyrstu íbúð og hefur langt allt sitt sparifé að veði,en eiga nú ekki lengur fyrir skuldum.Orð án innhalds hafa ekkert gildi,það þýðir ekki lengur að ranghverfa málum og blekkja fólk.
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 19:48 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
15.jan.n.k.verður réttur til olíuleitar boðinn út á Drekasvæðinu.
6.9.2008 | 22:56
Nokkur ár geta liðið þar til tilraunaboranir á vel völdum stöðum leiða til fundar á olíulind ,sem hagkvæmt er að hefja olíuvinnslu í.Að mati sérfræðinga er ekki óraunhæft að ætla í tilliti Drekasvæðisins muni líða 16 ár þangað til vinnsla gæti hafist að fullu,að því gefnu að olía finnist þar í næganlegu magni.
Ef allt gengur að óskum telja sérfræðingar hugsanlegt,að þarna megi finna a.m.k.10 miljarða tunna af olíu ,þar af tvo þriðju af gasi,verðmæti þess um 85.000 miljarða króna miðaða við núverandi gengi.Þá er talið að olíuvinnslufyrirtækjunum verði gert að greiða 15% tekjuskatt og svo þrepaskiptan vinnsluskatt upp að 7,5%,að þvi gegnu að hagnaður fyrirtækjanna sé undir 20% af vinnslukosnaðinum.Hins vegar gæti skatturinn hækkað í þrepum upp í allt að 40% við hagstæð skilyrði.
Kannski geta olíuskattar skilað ísl.ríkinu þúsundum miljarða króna í framtíðinni.Þá er eins gott að efnahagsstjórnkerfið verði í lagi.
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 23:10 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Við lok annars ársfjórðungs vernaði staðan um 27 míljarða.Þá var viðskiptahalli óhagstæður um 128 miljarða á öðrum ársfjórðungi.
Ég ætla mér ekki að gerast spámaður um framtíðarstöðu þeirra 319 þúsund íbúa,sem hér búa við slíka skuldastöðu og viðskiptahalla.Miðað við höfðatölu erum við skuldsettasta þjóð veraldar.Það gleymist alltaf þegar verið er að telja okkur í trú um að við séum eitt ríkasta land heimsins.
Ég held að tímabært sé að upplýsa þjóðina um heildar efnahagsstöðu hennar og framtíðarsýn í víðtækum skilningi.Fjárlögin eru að mestu eins árs framkvæmda - og rekstraráæltun ríkissjóðs. sem gefur okkar enga innsýn í skuldir banka og fyrirtækja,sem eru í reynd aðalorsakavaldar þess mikla fjárhagsvanda sem þjóðin býr nú við.
Sumir erlendir sérfræðingar telja að hugsanlega verði bankarnir gjaldþrota,þar sem þeir hafi ekkert lánstraust lengur á hinum almenna heimsmarkaði,hvað verður þá um sparifé þjóðarinnar ?.
![]() |
Viðskiptahalli aldrei meiri |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 21:38 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Norðurpólsísinn verður að mestu horfinn 2030 - Hvaða áhrif hefur það ?
31.8.2008 | 23:25
Rannsóknir sýna að siglingaleiðin milli Kyrrahafs og Norður Íshafsins muni hugsanlega opnast eftir rúm 20 ár yfir sumartímann.Ef sjávar - og lofthitin heldur áfram að hækka eins og undanfarin ár,þá telja sérfræðingar að þessi niðurstaða verði raunin.Miklar breytingar verða á lífríki sjávar hér við Ísland,nýjar fisktegundir frá heitari hafsvæðum mun leita hingað og eitthvað af fiskstofnum okkar munu leita til norðlægari hafsvæða. Nú þegar hefur fjölgað nokkuð fuglategundum hér á landi og landbúnaður hérlendis mun einnig njóta góðs af auknum hita a.m.k.tímabundið.
Þá er talið að lífræn efni í þíðandi sífrera norðurslóða losi um enn meiri gróðurhúsa lofttegundir.
Ætla má að hérlendis verði komið upp stórum hafnarmannvirkjum til umskipunar á vöruflutningum milli heimsálfa í austri og vestri.Sjálfsagt geta Íslendingar hagnast tímabundið á þessum veðurfarsbreytingum,en allir sérfræðingar telja að af hitun jarðar og breytingar hafstrauma stafi mannheimi ógn af ,sem allar þjóðir verða að takast á við í auknum mæli.Aukning á mengun á heimsvísu er í reynd vegvísir á að hnötturinn okkar breytist í óbyggilegar auðnir.Það gengur ekki lengur að auðhyggjan og græðgin dragi pólutískt myrkur yfir höfuð jarðarbúa og ranghverfi málum og blekki fólk.Sú viðspyrna sem við kunnum að eiga í þessum málum verða allar þjóðir að sameinast um.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Fleytisamningar stéttarféaga til nokkra mánuða - upphaf af undanhaldi í komandi kjarasamningum.
30.8.2008 | 16:03
Hugsanlega er þarna komin skýring á,að ríkisstjórn hafi ekki gert neina aðgerðaráætlun í efnahagsmálum.Það á að ýta vandanum undan sér með fleytisamningum við stéttarfélögin fram eftir næsta ári.
Ríkisstjórnin lofaði ótal aðgerðum eftir gerða kjarasamninganna á almennum markaði s.l.vetur.en lítð orðið um efndir.Húsaleigbæturnar hafa t.d.ekki gengið eftir og svo átti náttúrlega að hækka strax skattleysismörkin þegar verðbólgan fór á skrið og ríkið átti að setja aukna fjármuni til félagsmála,sem gangast best láglaunafólki.Loforð ríkisstjórnarinnar fyrir kosningar að afnema stimilgjöld voru starx svikin og skildi það gilda aðeins um kaup á fyrstu íbúð.
Maður hefur megnustu skömm af ríkisstjórnum undanfarinna ára og núverandi siglir í kjölfar hinna.Það þarf engan að undra að samk.skoðanakönnun á s.l.ári settu landsmenn alþingi í neðsta sæti yfir vinsældir stofnana ríkissins.Við erum að ræða hér um sjálft löggjafarvald þjóðarinnar.Er ekki löngu tímabært að rannsaka hvaða ástæður liggja til grundvallar vanþóknun og virðingarleysi þjóðarinnar fyrir Alþingi Íslendinga ? Er nokkur von til þess að við fáum hæft fólk til að gegna störfum alþingismanna við slíkan orðstír?
Þegar við hlustum á umræður frá alþingi þá fáum við reyndar að hluta til svar við þessu virðingarleysi.Það er eins og ekki sé hægt að koma nokkru máli í gegnum þingið á rökrænan og skipulegan hátt,endalausar fortíðarumræður, fyrirspurnir og andssvör um málefni, sem virðist gera þingið nánast óstarfhætt.Þá eru þingmenn alltaf að reyna að baktryggja sína stöðu hjá valdhöfum flokkanna oft gegn betri vitund..Lýðræði og frelsi verður seint skapað innan þingsins með þessum hætti.Hinn pólutíski flokksvegvísir þingmanna er afar þröngur og torveldar lýðræðislegar niðurstöður.
Hvað er andlegt fresli ? Það er lausn undan blekkingum persónuleikans, sjálfslýginni.
Var ekki búið að ákveða fyrir nokkrum mánuðum að stofna til þjóðarsáttar um úrlausnir í efnahagsmálum ? Ekkert heyrist frá ríkisstjórninni, ASÍ eða öðrum aðilum vinnumarkaðarins.Staðfestir þögnin að ekkert sé verið að vinna að þessum málum.Það eina sem heyrist frá forsætisráðhr.að verið sé að vinna við að aðstoða bankana,en ekki orð um verðbólguna, okurvextina,verðtryggingar,afkomu heimilanna og hina handónýtu krónumynt okkar.Hvers á þjóðin að gjalda á hún ekki rétt á að fá aðgerðaráætlun ríkisstjórnarinnar í efnahgsmálum þ.e. staðreyndir málsins á borðið ?Ég held að farsælast væri fyrir Sjálfstæðisfl.að skipta um formann,við verðum að hafa sýnilega forustu í ríkisstjórn með skilvirkan vegvísir fyrir framtíðina.Sé miðað við síðustu Gallup skoðanakönnun er Sjáfstæðisfl.með 32 % kjörfylgi,en fengi um 3 - 4 % minna upp úr kjörkössunum,sé miðað við alþingiskosningar.
Nú standa ekki nema rúm 50 % kjósenda á bak við ríkisstjórnina samk.skoðunarkönnun,en voru um 80% í upphafi stjórnarinnar.Ríkisstjórnin uppsker eins og hún sáir,það er alveg augljóst á þessum tölum.
Samfylkingin ber náttúrlega pólutíska ábyrgð á rekaldi ríkisstjórnarinnar,það er sorglegt að sjá hana halda uppi bágbornum röksemdum fyrir aðgerðarleysi forsætisráðhr.Ingibjörg ætti strax að koma saman aðgerðrhópi með aðilum vinnumarkaðarins,BSRB og ríkisstjórnarinnar um úrlausn efnahagsmála.Þolinmæði fólks er þrotin,verðtryggingar húsnæðismála á meðalháum lánum er í dag 1,6 milj.kr.á ári,sem bætist ofan á höfuðstól lánanna.Þið ættuð að horfa í augu unga fólksins,sem er að reyna að eignast sína fyrstu íbúð og hefur langt allt sitt sparifé að veði,en eiga nú ekki lengur fyrir skuldum.Orð án innhalds hafa ekkert gildi,það þýðir ekki lengur að ranghverfa málum og blekkja fólk.
Dægurmál | Breytt 7.9.2008 kl. 15:20 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Forseta Íslands og menntamálaráðhr.ber að þakka.
27.8.2008 | 21:32
Framganga forseta Íslands Ólafi Ragnari Grímssyni og Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttir,menntamálaráðhr.ber að þakka sérstaklega fyrir frumkvæði beggja fyrir móttöku handboltalandsliðsins.Þessi móttökuhátíð náði svo sannarlega tilgangi sínum,að tugþúsundir landsmanna hilltu hetjur sínar af sannri gleði og innlifun..Foreldrar með börnin sína veifandi þjóðfánanum,klappandi og gleðin skein úr hverju andliti.
Sú ákvörðun að veita þeim fálkaorðuna var skynsamleg aðgerð og jafnframt þakklæti þjóðarinnar til strákanna okkar.Ég er sannfærður um að svona aðgerð hvetur íþróttamenn til dáða og börnin munu líta á heturnar sem fyrirmyndir sínar.Þetta er jákvætt og ætti líka að sameina þjóðina til góðra verka.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Marg ítrekaður glæfraakstur sportbíls á skólalóð við Austurbæjaskóla nýlega olli miklum ótta viðstaddra.Lögreglan handtók ökumanninn og farþega og færðu þá til yfirheyrslu og bifreiðin tekin í vörslu lögreglunnar..Bifreiðin hafði ekki verið færð til skoðunar og voru því skrásetninganr.hennar því fjarlægð.
Ökumaðurinn er talinn hafa brotið hegningarlög með atferli sínu á skólalóðinni,en myndskeið er til af atburðinum.Þá mun hann hafa ekið undir áhrifum fíkniefna.Við slíku broti getur ökumaður hlotið allt að 4 árum.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Hinir mögnuðu sigrar handboltastrákanna okkar í Peking hafi hrundið af stað meiri gleði og samstöðu þjóðarinnar en áður er þekkt.Þegar öll þjóðin ungir sem aldnir segja ÁFRAM íSLAND og faðma hvorn annan og gráta gleðitárum þá er gaman að vera Íslendingur.Þessi ríka samstaða hinnar fámennu eyþjóðar er svo einlæg og tær.
Þegar sorgin ber dyra hjá þjóðinni í slysum og hamförum þá sameinast líka þjóðin,allir eru tilbúnir að rétta hjálparhönd.Þessi framkoma er svo fastofin í eðli þjóðarinnar.Á svona stundum framkallast eitthvað innra með manni sem er svo jákvætt og fagurt. Íþróttir er kjörin vettvangur fyrir þjóðina að sameinast,þar eigum við bestan aðgang að æskunni og láta gott af okkur leiða.
Í slysum og hamförum þá sameinast líka þjóðin,allir eru tilbúnir að rétta hjálparhönd.Þessi framkoma er svo fastofin í eðli þjóðarinnar.Á svona stundum framkallast eitthvað innra með manni sem er svo jákvætt og fagurt. Íþróttir er kjörin vettvangur fyrir þjóðina að sameinast,þar eigum við bestan aðgang að æskunni og láta gott af okkur leiða.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Slæm upprifjun fyrir Davíð - Ótímabær birting fyrrv.Mogga ritstjóra.
19.8.2008 | 17:48
Úr dagbókarfærslu Matthíasar Jóhannessen fyrrv.ritstjóra kemur fram,að Þáverandi forsætisráðhr.Davíð Oddsson hafið lengi velt því fyrir sér hver ætti að greiða lækniskosnað Guðrúnar Katrínar forsetafrúar í Bandaríkjunum.Öll þjóðin fylgdist með þessari hæfileikaríku, fallegu og ástsælu konu,sem var stolt sinnar þjóðar.Það var þjóðarsorg þegar hún lést um aldur fram.
Nú tíu árum eftir andlát hennar fer Matthías að skýra frá viðtali Davíðs við Svavar Gestsson sendihr.um þessi viðkvæmu mál.Þessi frásögn um aðkomu Davíðs að þessu máli,lýsir afstöðu hans til Ólafs Ragnars Grímssonar forseta.Það er eins og hatrið valdi stundum alvarlegri bilun á sálargangverkinu og menn losni ekki úr myrkri persónuleikans.
Svona endurminningar Matthíasar um sinn besta vin Davíð geta varla komið honum vel.Þá eru þessi tímamörk um birtingu einkasamtala ekki í samræmi við þær hefðir, sem tíðkast hafa hér á landi.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)