Verðandi borgarstjóri hefur margsinnis logið að þjóðinni.
17.8.2008 | 19:42
Hanna Birna hefur margoft staðfest opinberlega að samstarfið við Ólaf borgarstj.hafi allaf verið gott og borgarstjórnarfl.Sjálfstæðisfl.stæði heill að baki honum.Nú er komið í ljós,að mikill ágreiningur hafi verið um ýms störf Ólafs sem borgarstj.,sem leitt hafi að lokum til að samstarfi flokkanna var slitið.
Það er því augljóst, að verðandi borgarstj.hefur ítrekað logið að þjóðinni um hið trausta og góða samstarf við Ólaf.Sannleikurinn er sá að í málefnasamningi flokkanna fékk Ólafur um 70 % af stefnumálum flokks síns samþykkta,sem voru að stórum hluta andstæð stefnumálum ihaldsins í borgarstjórn.Eins og kunnugt er fékk Ólafur síðan borgarstjórastólinn og stefnumál sín samþykkt fyrir að sprengja fyrrv.borgarstjórn.Þetta virðist allt hafa verið fyrirfram ákveðin leikflétta til skamms tíma til að ná aftur meirihluta í borginni.
Hanna Birna samþykkti þennan dæmalausa gjörning ásamt öðrum borgarftr.íhaldsins.Hvað gerir hana nú hæfa til að gegna borgarstjórastarfinu ? Borgarstjórnarflokkur íhaldsins átti náttúrlega að leita sér að hæfum borgarstj.utan þeirra raða,þeir voru margsinnis búnir að gera sig vanhæfa fyrir gallaðar og ósannar skilgreiningar og ranghverfa málum og blekka fólk.
Hanna Birna ber þunga pólutíska ábyrgð ,sem valdhafar flokks hennar hafa samþykkt.Nú hefur Sjálfstæðisfl.eina óbærilega framsóknarhækju til að stjórna borginni,sem hefur reyndar engan varamann,sem hefur neitað allri samvinnu við hinn nýja borgarmeiruhluta.
Nýjasta skoðunarkönnun um fylgi flokkanna í borginni,sem birt var í dag sýnir að Samfylkingin fengi hreinan meirihluta í borginni um 47%,en fylgi Sjálfstæðisfl. og Framsóknar væri samanlagt um 30%.Það er afar slæmt að svo mikill minnihluti stjórni borginni og þó er verst af öllu að þessi eini framsóknarmaður í borgarstjórninni skuli fá stjórnunarvald að hálfu við Sjálstæðisfl.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Framsókn til í slaginn enn á ný með íhaldinu í borgarstjórn -,Ólafur F.Magnússon hættir.
15.8.2008 | 13:23
Framsóknarfl.veit samk.skoðanakönnunum að hann á aðeins 2-3 % kjörfylgi í borginni og fer mínkandi.Þeir vita hins vegar af fenginni reynslu ,að eftir ýmsum bitlingum er að slægast í borgarstjórn og í þeim efnum er þeir opnir í báða enda.
Sem andstæðingur Sjálfstæðisfl.tek ég slíkum breytingum vel,þá væru þeir endanlega búnir að skera undan sér og standa áfram sundraðir uppi i hárinu hvor á öðrum.Það er eins og einhver alvarleg bilun hafi orðið í sálargangverki íhaldsins þegar þeir sóttu Ólaf F.Magnússon yfir bæjarlækinn og gerðu að borgarstjóra.Það þarf mikla einfeldni og ósvífni gagnvart kjósendum að bjóða þeim upp á svona úrlausn.
Eitt aumkunarverðasta samband lágkúru og ruglingsháttar í pólutík hefur íhaldið enn á ný leitt yfir borgina. Framsókn er sýnilega næsta hundtík íhaldsins í borgarstjórn.Fíflhyggja flokkanna um 50 % skiptingu valds innan borgarstjórnar,þar sem Framsókn hefur aðeins einn mann er algjört virðingarleysi við kjósendur í Reykjavík.Það setur manni nábít og böggul fyrir brjóst,að þurfa að upplifa aðra eins misnotkun á lýðræði og hlusta á fáranlega skrúfmælgi væntanlegs borgarstjóra Hönnu Birnu.
Ólafur telur að hann hafi verið blekktur til samstarfs við Sjálfstæðisfl.Þeir hafi ekki staðið við mállefnasamning flokkanna.
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 13:29 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Íslenska eymdarvísitalan ( Misery Index ) mælist nú 16,7 %.
13.8.2008 | 23:14
Mælikarðrinn á eymd er fundinn út með því að leggja saman verðbólgustigið 13.6 % og atvinnuleysi 3,1 %.Aðeins fyrri Austantjaldslríki og Suðurameríkuríkin toppa eymdarvísitölu okkar.
Við höfum verið að hæla okkur af ríkidæmi þjóðarinnar,reyndar hef ég aldrei skilið þá skilgreingu,þar sem heimilin í landinu eru þau skuldsettustu í Evrópu og þó víðar væri leitað.Eru kannski eignir og skuldir enginn mælikvarði lengur á ríkidæmi þjóða.
Pétur Pétursson er besti knattspyrnumaður á Íslandi fyrr og síðar.
12.8.2008 | 20:43
Ég ætla ekki að fara að rökstyðja álit mitt í þessum efnum,öll samanburðarfræði um getu manna í knattspyrnu er afar mismunandi eftir því hvaða hæfileika þeir hafa .Þegar allt er grandskoðað finnst mér leikskilningur,framkoma og tæknileg meðferð Péturs vera í fyrsta sæti.Hann var markaskorari af bestu gerð,á reyndar ennþá deildarmetið 19 mörk ásamt fleirum.
Gaman væri að heyra álit ykkar um besta leikmann Íslandssögunnar í knattspyrnu.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Neytendasamtökin eiga daglega að auglýsa eldsneytisverðið.
10.8.2008 | 22:02
Þetta væri þörf og reyndar sjálfsögð þjónusta við neytendur svo þeir geti ávallt keypt elsneytið þar sem það er ódýast.Það myndi skapa einhverja samkeppni,þó hún sé oftast varla sýnileg.Láta reyna á þetta og sjá hvað gerist.Þá verða líka neytendur að verðlauna þá sem eru ódýrastir hverju sinni og versla hjá þeim.
Verðtryggingar á að banna með lögum -þær leggjast á höfuðstólinn og eru óafturkræfar.
8.8.2008 | 10:59
Verðtryggingar sem við búum við eru svo haganlega gerðar fyrir lánveitendur,að nánast allar verðhækkanir úti í heimi telja hérlendis.hvort heldur þær koma til út af olíuhækkunum eða matvælum erlendis frá.Verðbólguskotin koma á okkur úr öllum áttum.við eigum enga vörn né skjól hjá núverandi efnahagsstefnu ríkisstjórnarinnar. Hækkanir leggjast á höfuðstól lána og eru óafturkræfar sama hvað kann að gerast í heiminum síðar á lánstímanum.Verðtryggingin er þannig úr garði gerð,að ef um verðhjöðnun yrði að ræða lækkar lánið ekki neitt.Það hlýtur að teljast eðlileg og lýðræðis krafa að fundin verði leið til að jafna ábyrgðinni milli lánveitenda og lántaka.
Hvernig væri að ríkissjóður og bankar myndu taka á sig strax helming verðtryggingar á húsnæðismálum og verðtryggingin yrði að fullu afnumin innan tveggja ára.Slík aðgerð myndi veita lánveitendum sterkt aðhald og hjálpa jafnframt lántakendum að standa í skilum með sín lán.
Þóra Guðmundsdóttir skrifar ágæta grein um þessi mál í Morgunblaðinu í dag.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Skattaparadísir fyrir skattflóttamenn eru víðsvegar um heiminn.
6.8.2008 | 18:35
Samkomulag Íslands við hin Norðurlöndin að hindra skattaflótta á þessum Ermasundseyjum kemur að litlu gagni,þar sem fjöldi eyja í Karabiskahafinu og fjöldi annara staða víðsvegar um heiminn gegna sama hlutverki.
Vitað er að stór hluti þess fjármagns sem vistaður er á svona stöðum kemur m.a.frá alls konar afbrotamönnum og Mafíuhreyfingum viðsvegar í heiminum.Menn munu því auðveldlega geta fært viðskipti sín frá Ermasundseyjunum til annara staða.Það þarf að verða alþjóðleg samstaða um heimsbann við skattflótta,það gæti reynst sterkt vopn gegn hvers konar alþjóðlegum afbrotum.Við Íslendingar höfum mikilla hagsmuna að gæta eins og aðrar þjóðir í þessum efnum,hundruð ísl.fyrirtækja er skráð þar
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 21:11 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Ég ætla bara að vona að lögreglan banni klámsíður á blogginu.Mér hefur alltaf funndist klámið vera eitt aumkunarverðasta samband lágkúru og uppskapningsháttar ,reyndar eins og sefjasjúk ímyndun.
Græðgin hefur fundið upp alls konar kynlífs uppákomur og viðskipti til að koma ár sinni fyrir borð á þessum markaði.Því miður hafa aðalega ungar stúlkur orðið fórnardýr þessa glæpamanna,þar sem þær ganga kaupum og sölum milli vændishúsa,klúbba, hótela ,símavændisþjónustu o.fl.
Klámið er eins og menn líta lágkúruna neðan frá.Því miður liggja alltof margir hundflatir fyrir klám áróðrinum ,eru sífellt að leita og trúa alls konar bulli um kynlífs athafnir,sem þeir geta best leyst sjálfir.
Fjármunir á þessum ólögmæta glæpamannamarkaði er gýfurlegur og talinn koma á heimsvísu næst á eftir fíkniefnamarkaðnum,en þræðir þeirra liggja reyndar saman eins og kunnugt er.Öll er þessi starfsemi búin að skjóta hér rækilega rótum í okkar litla þjóðfélagi,en reynum af öllu mætti að stöðva framgang klámsins.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Þessi niðurstaða kemur ekki á óvart sé miðað við getu - og úrræðaleysi ríkisstjórnarinnar í efnahagsmálum.O stefna forsætisráðhr.í verðbólgu og vaxtamálum með handónýta mynt er svo vissulega farið að taka sinn toll einkanlega á kjörfylgi Sjálfstæðisfl.32 % fylgi þeirra í skoðanakönnun nú þýðir í raun um 28% fylgi þeirra sé miðað almennt við kjörfylgi þeirra í alþingiskosningum.Samfylkingin verður strax að láta á það reyna hvort hægt verður að ná þjóðarsátt um aðgerðir í efnahagsmálum við aðila vinnumarkaðarins.
Verðbólgan verður að fara undir 4% fyrir áramót.Verðbólgan á evrusvæðinu er nú 4,1 % á meðan hún er hér yfir 13%.Vill ekki ríkisstjórnin upplýsa þjóðina hvað veldur þessum mikla mismun.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)