Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag
Borgarstj.reynir að réttlæta alvarleg afglöp - Einangraður í eigin flokki -Opinber rannsókn.
6.10.2007 | 21:32
Þessi frægi fundur dótturfélags Orkuveitu Reykjavíkur Energy Invest stjórnarm.Bjarni Ármannsson ,sem sameinaðist Geysi Green Energy s.l.miðvikudag.Borgarstj.sem situr í stjórn OR fyrir hönd borgarinnar hefur heldur betur komist í sjálfheldu.4.miljarða áhættu framlag OR í REI hafði ekki fengið formlegt samþykki borgarfulltrúa í hans eigin flokki,þar sem þeir voru mótfallnir að opinber fyrirtæki taki þátt í áhættufjárfestingum.Auk þess hafi þessi fundur verið boðaður með sólarhrings fyrirvara,en lögum samkvæmt þarf viku fyrirvara.Fundurinn er því kolólögmætur af þeim sökum
Þegar svo kom í ljós,að Bjarni Ármannson hafði keypt hlut í hinu nýja félagi fyrir l.5 miljarð kr.og nokkrir gæðingar OR frá 7 - 23 milj.og óbreyttir starfsm.áttu að fá 100 -300 þúsund þá sprakk blaðran og varð að illkynjuðu meini.Hver hafði heimilað þessi viðskipti?Borgarstj.Vilhjálmur,Bjarni Ármannsson og hverjir aðrir báru ábyrgð á þessu fjármálahneyksli.Viðskiptin fóru fram á genginu 1.3,sem talið er að hafi þegar meira en tvöfaldast.
Það verður ekki hjá því komist,að fram fari opinber rannsókn á þessum gjörningi öllum,svo ljóst sé hvort borgarstj.hafi framið embættisafglöp,sem leitt geti til afsagnar hans og sömuleiðis verði Bjarni látinn gera fulla grein fyrir á hvaða forsendum og með leyfi hvers hann átti þessi persónulegu viðskipti.Sama gildir um aðra kaupendur í þessu máli.Þegar græðgin er farin að naga ríkisfyrirtækin innan frá með þessum hætti , þá er tími til að segja STOP.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 21:33 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Nú þegar líður að kaupsamningum hljóta samningsaðilar vera búnir að ákveða launakröfur sínar í megin atriðum.Menn hljóta af fenginni reynslu að reyna að tryggja að umsamin laun haldi verðgildi sínu út samningstímabilið.Síðustu samningar voru miðaðir við 2.5% verðbólgu,en hún hefur lengst af á þessu tímabili verið 2 - 3 sinnum hærri.Viðmiðun launasamninga verða í komandi samningum að grundvallast við ríkisvaldið og sveitafélög um tekjuskattsálagningar,útsvör og skattleysismörk.Til að framfylgja jafnræðisreglu í skattaálagningum væri best að hafa eitt skattstig svokallaðan flatan skatt.Þá sitja allir við sama borð og fjármagnstekjuskattur aflagður.
Reikna þarf nákvæmælega út hvað tekjuskattur og útsvar þurfa að vera há til að standa undir rekstri ríkissjóðs og sveitafélaga og jafnframt hvort hægt væri að ná þessu takmarki á kjörtímabilinu.Fyrirtæki hafa fengið miklar skattalækkanir á undanförnum árum,nú er komið að hinum almenna skattgreiðanda.
Fróðlegt væri að heyra frá ykkur ágætu bloggara um þessar hugmyndir og annara á þessum vettvangi.
Heimiliskettir lokaðir úti meðan fólk er í vinnu - oft næturlangt
1.10.2007 | 22:45
Það er áberandi þar sem fólk býr í sambýlishúsum,að kettir séu oft lokaðir úti af heimilum meðan fólk er í vinnu og oft næturlangt.Þessir kettir eru svo mjálmandi og svangir utan íbúða og gera vart við sig við inngang íbúða.Margir finna eðlilega til með kisunum og gefa þeim að borða,en þá ertu endanlega búin að tryggja endurkomu þeirra til þín oft á dag.Þessir kettir kunna vel þá list að láta mann vorkenna sér,látbragð þeirra er hrein list,sem ég á engin orð yfir.
Ég hef í gegnum tíðina stundum rætt við kattaeigendur,sem umgangast dýrin með þessum hætti.Viðbrögðin eru á ýmsa vegu.Þér kemur ekkert við hvernig ég meðhöndla köttinn minn,segja margir,aðrir að kettir hafi gott af útiverunni annars verði þeir einmana og sumir bera við aðstöðuleysi heima hjá sér.
Er ekki löngu tímabært, að eftirlit sé haft með meðferð heimilisdýra almennt,þau þurfa sína umboðsmenn eins og við mannanna börn.Kettir og hundar eru ekki leikföng,þau hafa sínar tilfinningar og hugsanir,okkur ber að virða þau í einu og öllu.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 22:54 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Verðtrygging verði afnumin - barn síns tíma -Sjálfstæðisfl.ráðvilltur.
29.9.2007 | 17:40
það ætti öllum að vera orðið ljóst,hvernig tilvist verðtryggingarinnar dregur úr virkni stýrivaxta Seðalbankans.Þegar verðtryggingin er til staðar hafa bankar alls enga ástæðu til að styðja við Seðlabakann,því þeir bera alls enga verðbólguáhættu af verðtryggðum lánum,það gera náttúrlega lántakendur.Afleiðingin er öllum ljós t.d.hækkar stöðugt höfuðstóll íbúðarlána og nú er svo komið að þúsundir lántakenda eru komnir í mikil fjárhagsvandræði.Aðgangur almennings að lánum í erlendri mynt er líka verðtryggingunni um að kenna og hefur líka orðið til að draga tennurnar úr stýrivaxtastefnu Seðlabankans.
Enn standa öll spjót á stýrivaxtastefnu Seðlabankans,sem virðist vera gagnslaus gagnvart verðbólgunni.Á meðan flýtur gjaldmiðill þjóðarinnar krónan stjórnlaus á heimsmarkaði verðbréfabraskara.Sjálfstæðisfl.finnur sér engan lendingastað í þessum umróti fjármálanna, frjáls - og auðhyggjustefna flokksins nær engri stefnumarkandi samstöðu við Samfylkinguna,sem hefur ákveðna stefnu um að sækja um aðild að EB.Eftir slíkar umræður getur þjóðin fyrst ákveðið ,hvort gerlegt sé að ganga í bandalagið.Seðlabankann burt og verðtrygginguna líka.
Vandmeðfarin fjáröflunarleið stjónvarpsstöðvarinnar Ómega.
27.9.2007 | 18:37
Sjálfsagt vilja allir sjá ungmenni fá styrk frá Guði til að geta séð ljósið í myrkri langrar ógæfu áfengis -og fíkniefnaneyslu.Við höfum undanfarið séð fjölda ungmenna lýsa á dramantískan hátt á Ómega lífi sínu í þessum undirheimum,þar sem hvers konar afbrotum var beitt til að afla fjármuna til fíkniefnakaupa.Þegar svo allt um þraut og vonleysið heltók þessa einstaklinga opnaðist þeim heimur trúarinna á Jesú Krist og Guð.Þar fengu þeir styrk frá ýmsum mætum söfnuðum,sem leiddu þá fyrstu sporin inn í helgidóm trúarinnar.
Allt þetta ágæta fólk,sem hefur lýst fyrir okkur lífi sínu allt frá barnæsku til fullorðinsára ber að þakka einlægni sína.Trúna þarf samt að hemja innan ákveðinna marka,hún má aldrei verða umfangsmeiri en innihald efnissins,svo hið andlega svið trúarinnar njóti sín.Við meigum aldrei "umbera" trúna vegna einhverra gamalla arftekinnar lotningar,sem prýðir athafnir eins og stundum má sjá í kirkjum landsins.
Kenningin um ódauðleika sálarinnar og allir séu jafnir fyrir föður vorum á himnum,er mér sem öðrum efasemdarmönnum íhugunarefni,en ekki hlutlæg sönnun.Hún skyggir samt ekkert á kristna trú.
Ég hef heyrt suma viðmælendur Ómega tala um að það sé Guðs vilji að gefa stöðinni fármuni,væri ekki eðlilegra að sú ósk kæmi frá hverjum og einum,sem vilja styrkja stöðina.
Hvar er Guð -hvernig lýtur hann út -hvaðan kemur hann,spurði mig ungur drengur um daginn.
25.9.2007 | 17:38
Ég get ekki svarað þér,spurðu foreldra þína.Þau segja að Guð sé allt það góða inni í mér,en sé ekki sýnilegur.Þá hlýtur það að vera rétt ,sagði ég.Ég hef stundum hitt þennan litla dreng á golfvellinum og verið að segja honum til í golfinu.
Eitt sinn er honum gekk illa að hitta kúluna rétt,sagði hann,hvar er þessi Guð Kristján getur hann ekki hjálpað mér? Hann er að hjálpa þér,þú spilar betra golf í dag en í gær,sagði ég.Hann horfði á mig og hristi hausinn.Veistu þú nokkuð hvert ég fer þegar ég dey,spurði hann.Kannski er golfvellirnir miklu flottari þar en hér,bætti hann við.Af hverju ertu alltaf að spyrja um Guð,spurði ég.Hann afi er nýdáinn,hann var sko góður golfari og sagðist myndi taka á móti mér hinum megin.Ég leiddi hjá mér frekari umræður um Guð og dauðann og kvaddi þennan litla fallega dreng og sagði honum,að hann yrði sennilega miklu betri golfari en afi hans.
Það hlýtur að vera hverjum kennimanni mikill vandi á höndum að túlka grundvallaratriði kristinnar trúar,að umbúðirnar verði,hversu góðar sem þær eru,skyggi ekki á sannindi trúarinnar á Guð og Jesúm Krist eða leiði til rangra ályktana þeirra sem á trúa.Það er sjálfsagt mjög ertfitt hlutverk fyrir presta að skapa lifandi snertingu við andlegan veruleikann.Móðir mín,sagði mér ávallt, að Guð væri kærleikurinn í sjálfum þér.Við þá fallegu og auðskyldu trú hef ég búið.Reyndi samt þegar ég var lítill að hlaupa undir enda regnbogans og spyrja hann.
Á meðan við miðum líf okkar hér á jörðu að meira eða minna leiti við undirbúning "einhvers skonar" annað líf,er og verður trúin a.m.k.á Jesúm Krist eilíf.
Er seðlabankastj.Davíð Oddsson,sambandslaus við land og þjóð?Bankinn verði lagður niður.
23.9.2007 | 22:18
Þegar seðlabankastj.var spurður nýverið um mótvægisaðgerðir vegna niðurskurðar á 30% þorskveiðiheimilda í sjávarbyggðum landsins, svaraði hann á þann veg, hvort eitthvað atvinnuleysi væri í landinu.Ekki var á honum að heyra að til neinna aðgerða þyrfti að koma.
Satt best að segja var ég undrandi á þessum ummælum seðlabankastj.Hafa ekki allir landsmenn heyrt viðbrögð fólks í sjávarbyggðum umhverfis landið vegna þessarar skerðingar ,þar sem það er að missa atvinnu og miljarða fjármuni.Hefur seðlabankastj.ekkert kynnt sér mótvægistillögur ríkisstjórnarinnar? Er Davíð Oddsson að lýsa persónulegum skoðunum sínum eða Seðlabankans?
Það er persónuleg skoðun mín,að við ættum að leggja niður Seðlabankann.Það sjást engin bremsuför hjá þeirri stofnun á verðbólguþennslunni og verðbólgumarkmið 2.5%,sem gerð voru við aðila vinnumarkaðarins eru víðsfjarri.Krónan siglir stjórnlaust í verðbréfabraski erlendra aðila.Seðlabankinn á svo Evrópumet í margfalt hærri vöxtum en annars staðar þekkjast.Burt með þessa vanburða stofnun.
Þegar löggæslan fær nægan tíma,mannafla og fjármuni til að rannsaka umfangsmikil fíkniefnamál þá nær hún árangri.Því miður hafa rannsóknir fíkniefnamála verið fremur tilviljunarkenndar í gegnum árin sökum mannfæðar og skorts á fjármunum.Rannsóknir sem taka til fjármögnunar, skipulags innflutnings og dreifingu fíkniefna eru afar flókin og tímafrek.Hér verður ekki farið út í að skilgreina þeim aðferðum sem beitt er við uppljóstrun slíkra mála.
Ljóst er á þessu máli,að löggæslan hefur gefið sér góðan tíma, unnið faglega og áunnið sér traust viðkomandi löggæslumanna í öðrum löndum.Það gleður mig mikið að þetta mál skyldi upplýsast á jafn farsælan hátt og raun ber vitni.Nú ættu stjórnvöld að sórauka fíkniefnarannsóknir og sýna það í verki á næstu fjárlögum,að þjóðin sé ákveðin í að hefja alls herjar stríð við fíkniefnaheiminn.Fólkið í landinu á að treysta löggæslunni .Látið álit ykkar í ljósi og hvetjið öll heimili í landinu að vera vel á verði gegn þessum versta óvini samtímans.
Lögmaður ákærður fyrir kynferðisbrot 4.14 ára stúlkna -Er á sama tíma verjandi meintra barnaníðinga.
20.9.2007 | 17:52
Hvers konar réttarfar býr þjóðin við.Ég trúi ekki að svona málsmeðferð samrýmist lögum um meðferð opinberra mála.Hvernig væri að dómsmálaráðherra upplýsi þjóðina um réttarfarlega stöðu hins ákærða lögmanns,sem verjanda á sama tíma í meintu barnaníðingsmáli.Stjórnvöld tala um endurskoðun á lögum um meðferð opinberra mála á komandi þingi.
Það er mjög slæmt að svona mál velkist í dómskerfinu og skaði virðingu almennings á framkvæmd jafn viðkvæmra mála og hér um ræðir.Á undanförnum árum hefur niðurstaða fjölda dómsmála einkanlega í kynferðismálum sætt mikilli og vaxandi andúðar fólksins í landinu og fátt bendir til að úr þeim vanda rætist.Dómsmálaráðhr.Björn Bjarnason verður að taka á þessum málum af festu eins og nú er gert hjá lögreglustj.í miðborg Reykjavík.Láta verkin tala eins og gert er hjá löggæslunni í fíkniefnamálum.Gott skipulag,frábær árangur. Öll þessi mál koma undir dómsmálaráðhr.og ber að þakka honum góðan stuðning við það sem vel er gert.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 20:34 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Sammála lögreglustj.í Reykjavík,að skemmtistöðum í miðborginni verði lokað kl.tvö.
18.9.2007 | 22:22
Fyrir nokkru síðan bloggaði ég um vandamál miðborgar Reykjavíkur og lagði til að skemmtistöðum yrði þar lokað kl.2 -3.Svonefndum næturklúbbum,sem hafa opið næturlangt yrði fundinn staður utan miðborgarinnar.Önnur bæjarfélög umhverfis borgina,sem daglega er kallað Stór- Reykjavíkursvæðið virðast láta sér fátt um finnast um áfengis - og fíkniefnaneyslu sinna ungmenna í miðborginni.Er ekki löngu tímabært að viðkomandi bæjarfélög , sem eru samtals með íbúafjölda yfir 70 þúsund manns axli ábyrgð með höfuðborginni að koma upp skemmtistöðum innan sinna bæjarfélaga,sem höfði til ungmenna o.fl.Það ætti að geta leitt til fækkunar fólks í miðborginni.
Sé litið almennt til stórborga í Evrópu eru næturklúbbar oftast staðsettir í göngufæri frá veitingahúsum miðborga.Því miður hafa viðkomandi borgar - og lögregluyfirvöld í Reykjavík ekki haft neitt nothæft skipulag í þessum málum.Miðborg Reykjavíkur hefur í áratugi verið um helgar bæli fyrir fyllibyttur og fíkniefnaneytendur.Skortur á salernum veldur m.a. því að fólk mígur og skítur út um allt, götur og gangstéttir eru þakktar hvers konar rusli og glerbrotum.
Stefán Eiríksson,lögreglustj.á þakkir skilið fyrir að reyna að ráða bót á þessum stóra vanda miðborgarinnar.Vonandi lætur borgarstjórinn sig málið varða líka.