Íslandsdeild Amnesty fer fram á endurskoðun á málsmeðferð Paul Ramses Odor frá Kenía.
4.7.2008 | 20:07
Miklar umræður hafa farið fram á brottvísun Kenía búans til Ítalíu,en þaðan kom hann til Íslands.Heimilt er samk.lögum að hafna landgöngu farþega til landsins utan ESB svæðisins ef hann uppfyllir ekki alþjóðlegar reglur um landgöngu hér.Hann sótti hér um hælisvist,þar sem kona hans og barn búa hér,en hún kom hingað frá Svíþjóð.Paul taldi sig líka vera í lífshættu stjórnvalda í Kenía vegna þátttöku sinnar í stjórnmálum þar.Þá hafði hann kynnst Íslendingum við hjálparstörf í Kenía.
Ekki verður hér lagður neinn dómur á réttarstöðu Keníabúans,enda mér ókunnugt um hvernig persónulegum háttum hans er varið.Hins vegar vekur brottvísun hans úr landi athygli mína,hvernig að henni var staðið.Ég hefði talið sjálfsagt að umsókn hans um landvistarleyfi hefði fengið efnislega meðferð.enda í samræmi við Flóttamannasamning SÞ frá 1951.Rétt skal mönnum að leita réttar og griðlands erlendis gegn ofsóknum.
Svo virðist sem hann gæti haft stöðu flóttamanns og því ætti hann að fá efnislega réttarmeðferð hér á sínum málum.Mér finnst frá mannúðar - og kristilegu sjónarmiði eigum við að stuðla að því að fjölskyldan geti búið hér eða í Svíþjóð.Hinn lagalegi rammi er grundvallaður á kærleika og mannhelgi,við skulum standa vörð um þau manngildi.
Athugasemdir
Svíar sendu mann frá Lýbíu heim til sín samkv. sömu forsendu og í þessu máli. Hann var handtekin, pyntaður og drepin við heimkomu.
Nú logar allt í Svíþjóð vegna þessa máls. Svíar eru eru komnir með nýtt orð í sænskuna. "regelverksfyllon" eða "Reglugerðarrónar" í embættum Ríkissins.
Það er kannski komin tími til að taka þetta orð upp á Íslandi líka...
Óskar Arnórsson, 6.7.2008 kl. 08:24
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.