Kynþáttafordómar
30.11.2006 | 23:14
Sveinn Arnarsson skýrði á blogginu frá nafnlausu bréfi sem honum hafði borist í pósti sem fjallaði um öfgafulla kynþáttafordóma í garð múslíma.Þetta er vel þekkt aðgerð rasisma meðan þeir eru að kanna hljómgrunn fyrir skoðunum sínum.Liggja í leyni og bíða færis.Í grein sem ég skrifaði nýlega hér á blogginu sem bar heitið rasismar var ég með ákveðin varnarorð til viðkomdi yfirvalda að gera strax skipulegar aðgerðir varðandi hömlulaust flæði útlendinga til landsins.Hér þarf að vera öflug móttökustöð og íslensku kennsla fyrir alla útlendinga,sem hingað koma til lengri eða skemmri dvalar.Starfsmannaleigur eru ekki undanskildar.Við verðum að reyna stilla saman eftir föngum fjölda innflyjenda við þau atvinnutækifæri sem eru til staðar á hverjum tíma.Við eigum að sýna í verki að allir nýbúar séu velkomnir hingað.Þeir eiga að vera vel upplýstir um öll sín réttindi hér og fá aðstoð viðkomandi stéttarfélaga ef á þeim eru brotin starfsréttindi.
Ef okkur tekst að halda vel utan um málefni nýbúa,sem dvelja hér í lengri eða skemmri tíma þá dregur mikið úr hættu kynþáttafordóma.Rasismar kinda undir átökum milli á ólíkra trúar og menningarheima. Þá verður það oft hlutskipti nýbúa að vera í láglaunastörfum ,sem ekki fá atvinnu við sitt hæfi.þar finna rasismar sér líka tilefni til að skapa hatur og hvers konar ósætti.Þeir sem vilja óheft flæði nýbúa inn í landið eru að kalla yfir okkur ástand,sem okkar fámenna þjóðfélag ræður engan veginn við.Við sem viljum hafa hemil og bera ábyrgð á þessu flæði útlendinga inn í landið erum þeir sem best vilja búa að þeim.
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt 1.12.2006 kl. 21:42 | Facebook


maggib
salvor
thorir
svenni
stebbifr
margretsverris
ragnarna
dofri
halkatla
gummisteingrims
hlynurh
vglilja
gaflari
vefritid
andreaolafs
pallvil
berglist
agny
svanurmd
siggisig
hrafnathing
730
hrannarb
arnih
omarragnarsson
bryndisisfold
duddi-bondi
ea
doriborg
hlynurha
annabjo
hafstein
eddaagn
ingabesta
olinathorv
kosningar
vestfirdir
xsnv
palmig
rheidur
kjoneden
berglindnanna
soley
fanney
fridjon
magnusmar
sms
hvalur
sigmarg
malacai
gattin
brandarar
gudrunmagnea
zeriaph
jakobk
magnusthor
huldumenn
vestskafttenor
sibba
siggith
geislinn
steinibriem
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.