Áhugaverð hugmynd Bjarnar Harðarson um fjárhagsvanda heimilanna.
8.9.2009 | 20:57
Á blog síðu Bjarna í gærdag kom fram áhugaverð hugmynd um hvernig fjárhagsvandi heimilanna varðandi íbúðarlán verði best leystur.Hann telur að hið opinbera leysi til til sín eignir og leigi þær aftur á sanngjörnu verði.Þetta er einföld og gæti verið skilvirk leið ef rétt er að henni staðið.Þá er einnig rétt að hafa í huga hvaða viðmiðun verði notuð við verðákvörðun íbúða og hvaða aðilar myndu framkvæma hana.Það verður strax að losa skulduga íbúðareigendur úr snöru verðtrygginga,það eiga lánveitendur og ríkisstjórnin að gera.
Einafaldleikinn er oftast besta lausnin og þess vegna styð ég þessa tillögu og tel hana góðan grundvöll til að byggja á.Vona að stjórnvöld skoði þessa hugmynd vel.
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 21:04 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Vil leyfa ykkur að heyra skemmtilega sögu af öndum,sem halda sig á tjörnum golfvallarins í Garðabæ.Ég hef um nokkrurn tíma gefið þeim brauð þegar ég spila golf á vellinum.Ég hef átt golfbíl um nokkurt skeið,sem ég nota vegna smávandræða í baki .Emdurnar koma fljúgandi til mín þegar ég nálgast þær,klæddur rauðri blússu.Sé ég öðruvísi klæddur t.d.í blárri blússu þá koma þær ekki til mín.Ég verð dálítið spældur,að þær skulu ekki elta mig persónulega heldur rauðu litinn á blússunni minni.Ég var nokkurn tíma að átta mig á þessu,hélt þær þekktu röddina,en nú er þetta fullreynt að ég tel.
Á s.l.ári þegar endurnar voru farnar af tjörnunum á golfvellinum langaði mig að vita hvert þær hefðu farið.Fór ég þá m.a.að tjörninni í Reykjavík og gekk umhveris hana.Sá ég þá m.a.nokkrar endur við brúna í nokkurri fjarlægð.Ég var náttúrlega í rauðu blússunn.Allt í einu syndir ein öndin í áttina til mín og kemur upp á tjarnabrúnina.Ég þekkti hana strax,þar sem hún var dálítið hölt á vinstri fæti.Ég gaf henni brauðmola sem ég var með og svo skyldu leiðir okkar.Það skal tekið fram að þetta var fyrsta öndin sem hændist að mér á golfvellinum,þá með nokkra unga.Nú þarf hún að fá læknismeðferð með fótinn sinn,hún er orðin draghölt ,ég verð að hjálpa henni,hún á það sannarlega inni hjá mér fyrir vinskapinn.Ég hef yndi af öllum dýrum,nema helst kisu hún drepur fugla og mýs sér til ánægju fremur en matar.Þetta er hennar lífsmáti og það verður maður að virða og segja bara pass.
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 21:36 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Lækka vexti ,afskrifa eins mikið og hægt er af skuldum og lækka þannig greiðslubyrgði heimilanna eru m.a. þau vandamál sem stjórnvöld standa andspænis í húsnæðismálum..Hinn stóri undirliggjandi vandi er verðtryggingin og hin handótnýta mynt,sem valda stærstum hluta verðbólgunnar.Frá 1. júlí 2007 til 1.sept.2009 hafa verðtryggð íbúðarlán hækkað um 35% - 40% ,en erlendu verðtryggðu gjaldeyrislánin um 75 - 100 % á sama tíma.
Þetta sífellda tal fyrrv - og núverandi ríkisstjórnar um óskilgreinda greiðsluaðlögun er eins og óútfylltur víxill,það veit engin hver upphæðin er.Um 40 þúsund heimili skulda hærri upphæðir en eignastaða þeirra er og hundruð heimila bætast við þann skuldalista á hverjum mánuði.
Ég tel að ætti að miða núverandi verðtryggingu íbúðarlána við júlí 2007,hafa hana óbreytta frá þeim tímamótum og lækka lánin sem því nemur.Verðtrygginin verði síðan afnumin að fullu í tveimur áföngum fyrir 1.jan.2010.Best væri vegna verðtryggingarinnar,að lánveitendur keyptu allar skuldsettar íbúðir ,sem eru umfram greiðslugetu og veðrými eigna og leigðu þær síðan út til fyrri eiganda,sem hefði forgangskauparétt yfir ákveðið tímabil.Þetta gæti verið þrátt fyrir allt hagkvæmasta leiðin út úr þessum ógöngum íbúðarlána.Tillagan er einföld í framkvæmd, auðskilin og laus við allar flóknar reikningskúnstir
Tillöga Framsóknarfl.um 20% flatan niðurskurð skulda er ekki ein og sér nothæf ,skapar of mikinn ójöfnun og aðstöðumun eftir fjárhæðum lántakenda. Hugmyndir Samfylkingarinnar um að frysta og lengja skuldahala íbúðarlána a.m.k. fimm ár,skilyrt væri að greitt hafi verið tilskilin afborgun og vextir af lánunum þann tíma.Þessi hugmynd er óraunhæf,enda nýtur hún tæpast meirihluta alþingis .Hugmyndir VG um að greiða lántakendum fasta upphæð og vinna að niðurfellingu verðtryggingar gæti verið raunhæf að vissu marki.
Allir stjórnmálafl.lofuðu tillögum í húsnæðismálum heimilanna fyrir kosningar,en enginn hefur komið fram með nothæfar tillögur ennþá.
Dægurmál | Breytt 14.9.2009 kl. 14:16 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Hvert sem maður fer heyrir maður frásagnir af fjárvana fólki,sem ekki getur greitt afborganir og vexti af íbúðarlánum og neyðin er slík hjá þúsundum heimila,sem verða stöðugt að leita til hjálparstofnana vegna fjárskorts fyrir daglegum nauðsynjum.Þetta ástand fer síversnandi á sama tíma situr ríkisstjórnin,alþingsmenn og starfsmenn þingsins aðgerðarlaus og háma í sig niðurgreiddan mat á kosnað fólksins í landinu.Reyndar gildir sama um starfsmenn ráðurneyta og ýmsar stofnanir ríkisins.
Ríkisstjórnin átti fyrst af öllu í sínum fjárhagslegu aðgerðum að skoða ástand og lífsafkomu sinnar eigin þjóðar og meta síðan hvort hægt væri bæta Bretum og Hollendingum hluta af því tjóni,sem þeir urðu fyrir.Nú er komið að skuldadögum,þá er þjóðin sett niður í hyldýpi erlendra skulda, launalækkanir og skattahækkun. Á sama tíma hækkar einnig allt verðlag á vörum og þjónustu.
Nú er þjóðin loks búin að fá meira en nóg af afleiðingum græðginnar og blekkingum stjórnvalda.Þjóðin lifir í hvíldarlausum ótta við fjárhagslegar afleiðingar fortíðar og því sem við tekur í fjármálum ríkisvaldsins .Nú eru það heimilin í landinu sem munu innan tíðar mótmæla og krefjast leiðréttingar á sínum kjörum,ella víki ríkisstjórnin og viðtaki utanþingsstjórn.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 22:48 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Hvítflibbar frjálshyggjunnar mótmæla á Austurvelli.
28.8.2009 | 20:46
Nú eru það mest svartklæddir hvítflippar sem hafa tekið að sér að mótmæla stjórnarstörfum ríkisstjórnarinnar.Menn sem áður baktryggðu sig hjá valdhöfunum sem fínir menn berja nú saman skeiðum pottum og pönnum.Þarna mátti sjá heimsk trúfífl eins og fyrrverandi þingmenn og bankastjóra,sem hafa dregið pólutískt myrkur yfir höfuð varnarlausra manna.
Það setur að manni nábít og böggul fyrir brjóst að horfa yfir þennan hvítflippa hóp,reyna með þessum hætti að losna undan afleiðingum verka sinna.Þegar frjálshyggju kapitalistinn er búinn að leggja undir sig Austurvöll með bareflum búsáhaldabyltingarinnar þá gæti hæglega verið að þeir væru farnir að svíða undan sinni eigin rangsleitni.
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 20:55 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Þegar Jóhanna og Steingrímur hafa verið spurð undanfarið hvað líður aðgerðum ríkisstjórnarinnar í húsnæðismálum,þá hefur svarið ávallt verið að fyrst þurfi að ljúka við Icesave málið.Þessi svör lýsa vel stjórnleysi og vanmætti ríkisstjórnarinnar.Það hefur verið öllum ljóst lengi að skuldir íbúðarhúsnæðis og fyrirtækja hafa farið ört vaxandi á sama tíma og kaupmáttur fer mínnkandi og ættu því fyrir löngu síðan að vera búin að fá afgreiðslu.
Getuleysi ríkisstjórnarinnar í málefnum heimilanna er algjör þó vitað sé að um 30% þeirra skulda meira en eignir standa fyrir og þúsundir leita eftir mataraðstoð í hverjum mánuði,þá stendur ríkisstjórnin ennþá ráðalaus og ræðir um einhverja fíflhyggju,sem engum kemur að gagni.Engin aðgerðaráætlun eintóm óvissa og heimskuleg greiðsluaðlögun er það sem fyrir þjóðinni blasir í þessum efnum,sem leiðir til sívaxandi ótta og hörmunga.
Við verðum að fá utanþingsstjórn og losna við löggjafarþingið eins og það leggur sig.
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 20:44 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Afskrifa íbúðarskuldir,sem eru umfram greiðslugetu og veðrými eigna.
23.8.2009 | 16:37
Það var löngu vitað eftir fall bankanna að svigrúm var í bankakerfinu til að takast á við hinar gífurlegu húsnæðisskuldir.Þegar lánin voru færð milli gömlu og nýju bankana var gert ráð fyrir afskriftum í þessum tilgangi.
Það verður að finna raunhæfa leið um greiðslugetu og veðrými heimilanna.Hér er um flókin mál að ræða,þar sem sumir lántakendur reyndu af fremsta megni að standa í skilum og fengu m.a. tímabundna aðstoð aðstandenda og gerðu ýmis skonar sparnaðaraðgerðir til að ná endum saman.Aðrir eyddu um efni fram og greiddu ekki tilskyldar afborganir af íbúðarlánum.Enn aðrir hættu að borga af lánum vegna fjárhagserfiðleika eða í mótmælaskyni við lánveitendur.
Það kann að verða erfitt að finna meðalveginn um sanngjarna úrlausn á íbúðarskuldum,en niðurfelling verðtryggingu lána t.d.s.l.tvö ár kemur sterklega til greina ásamt fleiri hliðaraðgerðum fyrir þá sem verst eru staddir.
Mest um vert er að hefjast strax handa,biðin um raunhæfar aðgerðir hefur valdið tugþúsunda heimila miklum vanda og þúsundir leita nú úrlausna erlendis.
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 16:51 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Icesave málið verður ekki óbreytt samþykkt á alþingi.
8.8.2009 | 21:06
Icesave samkomulagið stenst ekki,þar sem engin ríkisábyrgð er á Tryggingasjóði innistæðu eigenda.Enginn ísl.ríkisábyrgð verði fyrr en eftir samþykkt alþingis.
Það er augljóst að ekki var leitað eftir viðeigandi ráðgjöf innan eða utanlands áður en Icesave samkomulagið var undirritað. Um það eru okkar færustu lagafrófessorar og hæstaréttalögmenn sammála.Íslendingar verða að óska eftir nýju samkomulagi við Breta og Hollendinga og viðurkenna um leið handvöm og kunnáttuleysi sitt við samningsgerðina bæði er lýtur að lagalegum og fjárhagslegum þáttum málsins.
Þó við ljúkum þessu máli ekki með reisn úr því sem komið er,skulum við samt í lokin gera það á lögformlegan og drengilegan hátt.
Ríkisstjórnin ætlar ekki að lækka skuldir heimilanna í landinu
5.8.2009 | 19:50
40 þúsundir heimilia eru skuldsett langt umfram eignir,sem eru rúmlega 35 % af þjóðinni.Samkvæmt yfirlýsingu félagsmálaráðhr.í kvöldfréttum hefur ríkisstjórnin enga áætlun um að lækka skuldir heimilanna.Ríkisstjórnin hafi enga fjármuni til þess segir ráðhr.skuldir verða áfram frystar og höfuðstóllinn heldur áfram að hækka.Þúsundir heimila fara í gjaldþrot og landflótti er skollinn á.
Þeð er augljóst að ríkisstjórnin hefur engin tök á þessum skuldamálum þjóðarinnar og gerir sér mjög takmarkaðar hugmyndir um afleiðingar þeirra. Niðurröðun forgangsmála gengur allt út á Icesave málið og bankana,meðan heimilunum í landinu blæðir út.Heimilin í landinu eiga alltaf að skipa fyrsta sæti ríkisstjórnarinnar þegar jafn alvarleg kreppa gengur yfir.Sjálfsagt hafa margir kosið Jóhönnu Sigurðard.í alþingiskosningunum í þeirri trú,að hún stæði föst fyrir þegar hagsmunir efnaminna fólks væri annars vegar.Því miður hefur hún ekki komið fram með neinar tillögur til að leysa efnahagsvanda þessa fólks.Sársaukinn og reiði fólksins sem hér á hlut að máli hafnar aðgerðarleysi hennar og Samfylkingunnar.
Ef allar lausnir Icesave málsins og aðrar skuldir þjóðarinnar upp á 2000 miljarða á að leysa með hækkun skatta og skulda þá ætti ríkisstjórnin að fara frá og utanþingsstjórn taki við.Það hafa reyndar allir aðilar fjórflokkanna fengið tækifæri að sýna ábyrga stjórnsýslu,en engum tekist.Framkvæmda - og löggjafarvaldið er samanofið í einn pakka,þannig getur lýðræðið aldrei sinnt sínu hlutverki.
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 20:01 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Eva Joly fordæmir framferði breta,Hollands,ESB og Norðurlandanna.
2.8.2009 | 21:57
Enn og aftur gerist Joly málssvari Íslendinga gegn ESB og Alþjóðagjaldeyrissjóðnum.Greinin birtist samtímis í Aftenposten,Le Monde, Daily Telegraph og Morgunblaðinu.Hún átelur harðlega ábyrgðalausa afstöðu sumra ríkja ESB og Alþjóðagjaldeyrissjóðsins gangvart hruni íslenska efnahagskerfisins.Hún sendir Norðurlöndunum einnig tóninn,að þau skuli ekki bregðast við þeirri kúgun sem Íslendingar hafið orðið fyrir,það dragi úr raunverulegum vilja þeirra til að veita bræðraþjóð sinni stuðning.Joly telur að alþjóðasamfélagið yppi öxlum og láti sem engra breytinga sé þörf og beiti land eins og Íslendinga þrýstingi af fullkomnu miskunarleysi.
Ég vona að íslenska þjóðin sýni henni þakklæti fyrir frábæra grein,hún vill veita ísl.þjóðinni aðstoð og vekja athygli umheimsins á vandamálum þóðarinnar.Ísl.þjóðin skortir líka reynslu og þekkingu í samskiptum við stórþjóðir einkanlega á sviði fjármála.
Það vakti athygli eftir að greinin birtist,að aðstoðarmaður forsætisráðhr. skyldi vera að gagnrýna Joly vegna umfjöllunar hennar á þessum málum.Ef þessi gangrýni er í anda forsætisráðhr.ætti hún að skammast sín,sem hefur ekki einu sinni komið opinberlega fram við viðsemjendur okkar í Evrópu til að andmæla því miskunarleysi sem Íslendingar hefur verið sýnd.
Daily Telegraph
Dægurmál | Breytt 3.8.2009 kl. 00:14 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)