Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag
Enn ein nefndin um aldraða komin á koppinn.
26.1.2008 | 21:25
Jóhanna Sigurðard.félags - og tryggingarmálaráðhr. hefur skipað samstarfsnefnd um málefni aldraðra.Form.nefndarinnar er Ágúst Ólafur Ágússon,alþingism.Honum til fulltingis eru valdir aðilar,sem þekkja allir vel til þessa málaflokks.
Aldraðir hafa vægast sagt afar slæma reynslu af svona nefndarskipan,verkefnin hafa verið ótímasett og illa skilgreind.Allir vita hvernig kjör aldraðra eru í dag,þau eru vitnisburður um árangursleysi og aumingjaskap stjórnvalda á hverjum tíma.Alls konar loforð og sýndarmennska fyrir hverjar kosningar um bætt laun og kjör þessa fólks,hefur nánast undantekingalaust verið svikið.
Nú fær Ágúst Ólafur tækifæri að sýna hvað í honum býr,er í sterkri ríkisstjórn með mikla fjármuni.Nú kemur væntanlega í ljós fljótlega hvort ríkisstjórnin ætlar á ALVÖRU að sýna öldruðum þá virðingu og velvilja sem þeim ber.Það þarf ekki að skilgreina stöðu aldraðra í þjóðfélaginu,þjóðin í dag á þeim fyrst og síðast að þakka þau lífskjör sem við búum við í dag.Hins vegar bera aldraðir enga ábyrgð á þeirri auðhyggju, græðgi og blekkingum ,sem er búin að rótfesta sig í þjóðfélaginu.
Þegar Ólafur og Vilhjámur tilkynntu samstarf flokkanna í borgarstjórn,stóðu borgarftr. að baki þeim sorgmæddir og niðurlútir á svip.Þetta mynnti frekar á fólk við jarðarför,enginn að fagna nýtilkomnum meirihluta.
Komu fimm borgarftr.Sjálfstæðisfl.ekki að þessum málefnasamningi milli Ólafs, Vilhjálms og Kjartans ?Vissu þeir heldur ekki hvers konar blekkingum og ranghverfu var beitt við Ólaf til að fá hann til samstarfs,að til stæði að fá VG til samstarfs.
Í dag hefur heyrst frá innanbúðarmönnum í Sjálfstæðisfl.að bullandi ágreiningur sé um þennan gjörning allan og sér í lagi,að Ólafur hafi ekki tryggt sér stuðnings varaftr.síns Margrétar.Þá séu borgarstjóraefnin rúin öllu trausi,þeir hafi aðeins á bak við sig innan við 20% kjörfylgi..Þar ríki líka megn óánægja um afstöðu formann flokksins Geirs,að hann skyldi ekki stöðva Vilhjálm á byrjunarreit í þessu óheilla tafli.Nú er komið á koppinn enn verra mál en REI,Vilhjálmur með allt niður um sig enn á ný og alls óvíst að honum takist að girða sig.Það er von að hans borgarfulltrúar hafi staðið allir að baki honum hnífnir og sorgmæddir enda aumkunarverðir að horfa framan í þjóðina undir svona aðstæðum.
Það sannaðist rétt einu sinni í pólutíkinni að allt er falt fyrir bitlinga.Mannshöfuð sumra er ekki aðeins þungt,það er líka lengi að skapast,
Hvernig verður öryggis - og varnarmálum Íslands háttað undir stjórn utanríkisráðhr.?
18.1.2008 | 21:53
Fram hefur komið,að búið sé að ræða við nokkur NATO ríki um tímabundnar flugæfingar hervéla á Íslandi.Ekki hefur verið upplýst ennþá hver aðkoma Íslendinga verður v/ þessa æfinga.Hins vegar hefur verið rætt um að þessar liðsveitir NATO fái aðstöðu á Keflav.flugv.er varðar húsnæði og mat þeim að kosnaðarlausu eins og reyndar var áður meðan varnarliðið rak herstöðina.
Þessir NATO flugmenn sem hér munu dvelja við æfingar eru hermenn og lúta því herlögum í einu og öllu.Þegar bandaríski herinn var hér höfðu þeir alltaf herlögreglu til að framfyljga herlögum.Hvernig þessu verður háttað hjá utanríkisráðhr.veit ég ekki.
Ég tel nokkuð fullvíst að Íslendingar verði fyrr eða síðar eins og aðrar fullvalda þjóðir að koma sér upp heimavarnarliði til að annast sjálfir sín öryggis - og varnarmál.Ég tel ekki ólíklegt að bandalagsþjóðir okkar innan NATO óski formlega eftir því við íslensk stjórnvöld,að hér verði a.m.k.sérhæft heimavarnarlið,sem bandalagsríkin geta leitað til vegna þeirrar miklu hættu,sem heiminum stafar frá hryðjuverkasamtökum.Veikasta öryggiskeðjan má ekki liggja um Ísland.Þessir ósýnilegu fjandmenn eiga sér engin landamæri.Ég hef áður lýst þeirri skoðun minn,að umrætt heimavarnarlið komi undir sjálfstæða stjórn Almannavarna,sem hafi nána samvinnu við utanríkisráðneytið , löggæsluna ,landhelgisgæslu og björgunarsveitir.
Komi til þess að Íslendingar nái kosningu í Öryggisráð SÞ,sem ég mæli gegn,getur það leitt til meiri áhættu um hryðjuverk hér,vegna þeirra ákvörðuna ,sem við kunnum að taka gegn þjóðum sem halda hlífðarskyldi yfir alls konar hryðjuverkasamtökum.
Hver á að bera ábyrgð á tjóni, sem erlendar herflugvélar kunna að valda v/æfinga á Íslandi.
17.1.2008 | 21:15
Ég hlustaði á umræður frá alþingi í dag um öryggis - og varnarmál þjóðarinnar.Ég er sammála að þessi mál komi undir utanríkisráðuneytið,en ekki kom fram í umræðunum hvernig hernaðarleg aðkoma ráðuneytisins verður í samskiptum við NATO ríkin.Um hernaðarleg samskipti gilda allt aðrar aga - og samskiptareglur,en í almennum utanríkismálum.Fróðlegt verður að sjá hvernig þau mál verða leyst.
Varnarsamningurinn við Bandaríkin frá 8.maí 1951 er enn í gildi.en hann gæti haft ákveðinn fordæmisgildi.Í 12.gr samningsins varðandi tjónaskiptingu milli landanna,þar sem Bandaríkin bera ein ábyrgð skulu þau greiða 85% en Ísland 15%.
Hvernig verður þessum málum háttað varðandi æfingaflug NATO ríkja innan lofthelgi Íslands? Hvað um réttarstöðu NATO hermanna ,sem dvelja hér tímabundið, fer hún eftir herlögum viðkomandi ríkja eins og gilti um Bandaríska hermenn á samningssvæðunum.Í 2.gr.10tl. varnarsamingsins stendur orðrétt.:"Liði Bandaríkjanna er rétt að fara með lögregluvald á samningssvæðunum og gera viðkomandi ráðstafanir til að halda þar uppi aga,allsherjarreglu og öryggi".Ég taldi ávallt að þessi grein bryti í bága við Stjórnarskrá Lýðveldisins,þar sem Íslendingar einir geta farið með slíkt vald.
Þessi samningur var barn síns tíma og löngu tímabært að segja honum upp.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 21:43 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Ofstækisöfl í forustu Sjálfstæðisfl. - Valdboðið haft að leiðarljósi.
15.1.2008 | 22:26
Í Fréttablaðinu í dag er mjög athyglisverð grein eftir Sigurð Lindal lagaprófessor um embættisveitingu Þorsteins Davíðssonar í embætti héraðsdómara.Þar segir m.a.Einu sinni var kjörorð Sjáfstæðisfl.: "Gjör rétt - þol ei órétt ".Er kjörorðið nú:Gjör rangt - þol órétt ? Það er ljóst að hinum reynda lagaprófessor er ofboðið hvernig staðið var að þessari embættirveitingu hjá settum dómsmálaráðhr.Árna Mathiesen og rökþrota varaformanni flokksins,sem reynir að drepa málinu á dreif í því skyni að vekja samúð með hinum nýskipaða dómara.
Sigurður telur að innan ritstjórnarskrifstofu Morgunblaðsins hafi hreiðrað um sig ofsatrúarhópar,sem vandi sé að skilgreina,en þeir hafi náð til forustu flokksins í Valhöll.Sigurður segir réttilega að málið snúist ekki um persónu Þorsteins Davíðssonar þó ítrekð sé reynt að beina umræðunni þangað,heldur röksemdir dómnefndarinnar og lagaskilning í anda réttarríkisins.
Ljóst er að form.Sjálfstæðisfl.er á hálli braut,málgagn hans og stór hópur flokksbræðra hans einkanlega á Morgunblaðinu eru honum andstæðir m.a.vegna samstarfsins við Samfylkinguna.Sumir halda því ákveðið fram að Davíð haldi ennþá fast í marga valdaþætti flokksins og sýni það m.a.sem Seðlabankastjóri hver ráði ferðinni.
Í þessu máli eins og oft áður ræður taumlaus vildarhyggja,þar sem valdboðið er sett í öndvegi og annað látið víkja.Með þetta að leiðarljósi opnast alltaf fyrir ýmis konar geðþóttaákvarðanir,sem vega sífellt að lýðræðislegum starfsháttum.
Heimsklassa landslið - Spilum um úrslitasæti.
14.1.2008 | 21:35
Landliðið okkar er að toppa á hárréttum tíma.Leikurinn í kvöld við Tékka sýndi að vörnin er þétt og markvarslan góð.Þá kom í ljós eins og reyndar var vitað,að við eigum 5 - 6 skotmenn á heimsmælikvarða.fjölbreytilegur skotstíll þessara manna og hraði er unun á að horfa.
Þjálfarinn okkar Alfreð er ótrúlega slyngur að útfæra margslungnar leikaðferðir og nýta það besta í hverjum leikmanni.Heimsklassa þjálfari með afburða lið,hversu langt förum við.Í úrslit a.m.k.er spá mín ef allir komast hjá alvarlegum meiðslum.
Innkaupaferðin algjör fýluferð.
12.1.2008 | 21:24
Ætlaði að kaupa mér skíðaklæðnað.Fór í nokkrar sportvöruverslanir.Samfestingar jakkar og buxur voru svo stýfar og þykkar,að við lá að þær stæðu mannlausar.Ætlun mín að kaupa t.d.samfesting úr þunnu lipru efni eins og ég átti lengi,hafði keypt hann í Stokkhólmi.Maður klæðir sig undir gallan í flís nærfatnað eða prjónaföt eftir því hvernig viðrar hverju sinni.
Það réttlætir ekki að selja svona einhæfan hlífðarfatnað þó veður séu hér oft óblíð.Þá finnst mér skíðafatnaður hér yfirleitt ósmekklegur sé miðað við skíðalönd í Evrópu.Innkaupaferðin varð því algjör fýluferð,en sem betur fer eigum við Íslendingar fleiri valkosti,en þessar "sjálfstandandi flíkur".
Um hundrað ofbeldisverk gegn lögr.á s.l.ári - Þarf hún rafbyssur ?
11.1.2008 | 23:40
Tel fulla ástæðu að birta þessa bloggsíðu mína aftur vegna fólgsulegra ofbeldisbrota fimm útlendinga á fjóra lögreglumenn s.l.nótt í miðborginni.Allir lögreglum.hlutu áverka og eru tveir á sjúkrahúsi.Aukin ofbeldisbrot gegn lögreglunni er mjög alvarleg þróun fyrir fólkið í landinu.Virðing fyrir störfum hennar er grundvöllur þess að hún geti haldið uppi lögum og reglum.Við þekkjum flest í hverju störf hennar er fólgin,þau eru til að vernda þjóðina gegn hvers konar ógn og misrétti,fara á slysavettvang,umferðareftirlit ,fíkniefnaeftirlit ,vinna að björgunar - og forvarnarstörfum og vera hjálpar - og leiðbeinendur fólks á almannafæri.o.fl.
Því miður fjölgar alvarlegum árásum á lögregluna og skemmdum á lögreglubílum.Notkun hnífa og alls konar vopna virðast færast í vöxt og að margir ráðast saman gegn einum aðila til að skaða hann sem mest.Það eru ekki aðeins lýsingar lögreglunnar á vettvangi,sem sanna ástandið í þessum efnum,líka slysadeild Borgarspítalans, spítalar og heilsugæslustöðar víðsvegar um landið.
Við þessu verður að bregðast við af festu og hjálpa lögreglunni m.a.með að gera enn frekari breytingar á lögum til að herða refsingar fyrir árásir á lögreglu og torvelda henni störf á vettvangi.Ég tel að sá tækjabúnaður,sem hinn almenni lögreglumaður hefur yfir að ráða sé ekki nægjanlegur honum til varnar og til að framfylgja störfum sínum við stjórnlausa og hættulega menn.Að senda fleiri menn á vettvang kostar verulega fjölgun lögreglumanna og aukinn kosnað.Ég tel að lögreglan eigi að hafa allann þann öryggisbúnað ,sem kostur er til að sinna verkefnum sínum.Oftar en ekki er hún að koma fólki til hjálpar undan stjórnlausum fíkniefnaneytendum og ofurölva fólki.Þá verður lögreglan að vera þannig vopnum búin,að hún geti varið sig.Ég tel að lögreglan eigi að fá svonefndar rafbyssur,þær eru í reynd ekki hættulegri en þegar beita þarf þungum kylfuhöggum.Þá eru til margs skonar úðunarefni til að blinda árásarmenn tímabundið og er það að sjálfsögðu notað ef við á.
Það er ekki gott ástand þegar lögreglumenn segja upp störfum í tugatali,telja starfsöryggi sitt ekki nægjanlegt og einnig vegna lélegra launa.Víkingasveitin leysir ekki þennan vanda nema að litlu leiti enda ekki stofnuð til að sinna þessum þáttum lögreglustarfsins.
Stjórnmál og samfélag | Breytt 16.1.2008 kl. 20:39 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Sveigðu framhjá slösuðum manni á Vesturlandsvegi - Hvað veldur ?
9.1.2008 | 21:21
Enn og aftur gerist það,að ekið er fram hjá slösuðum manni .Í þessu tilviki var um að ræða mann á áttræðisaldri,sem hafði dottið á veginum rétt sunnan við Borgarfjarðarbrú.Talið er að minnsta kosti fjórir ökumenn hafi ekið fram hjá gamla manninum liggjandi á veginum,en hann hafði fengið mikinn höfuðáverka.
Hvað veldur þessum viðbröðgum ökumanna,er erfitt að meta,kannski hræðsla við að sjá ástand hins slasaða,sumir þola illa að sjá mikið blóðstreymi,enn aðrir vilja ekki blanda sér í það sem kann að gerast á slysavettvangi.Það er algengt að ökumenn tilkynni lögreglunni um slys,sem þeir hafa ekið fram hjá,en ekki skoðað neitt slysavettvang.Það er þó lögboðin skylda okkar allra að veita í slysatilfellum alla þá aðstoð ,sem okkur er möguleg,þar til lögregla og sjúkrabílar koma ástaðinn.Eftir að GSM símar urðu almenningseign er auðvelt að fá leiðbeiningar um fyrstu aðgerðir á slysstað gegnum 112.
Versta sem þú gerir sjálfum þér,er að aka framhjá slösuðu fólki og vera síðan með eilífa sektakennd um að þú hefðir getað hjálað viðkomandi.Ef þú treystir ekki sjálfum þér að veita fyrstu aðstoð,stöðvaðu þá næstu bifr.og fáðu hjálp.Hver stund er dýrmæt við slíkar aðstæður.
Stórhættuleg Reykjanesbraut - Ökumenn gæti fyllstu varúðar.
7.1.2008 | 18:40
Eins og kunnugt er varð verktakinn ,sem annaðist vegalögnina á Reykjanesbraut gjaldþrota og er viðskilnaður hans á vettvangi stórhættulegur ökumönnum.Á einum fjórum stöðum hafa verið settar múrsteinastýringar með stefnuljósum.Vegurinn í umræddum beygjum eru of þröngur og mjór og vitanlega ættu að vera aðvaranir á veginum við Ytri- Njarðvík,sem lýstu ástandi hans inn fyrir vegamótin við Voga.
Í dimmviðri og hálku eru þessar múrsteinsstýringar þó gular séu stórhættulegar, það hef ég reynt nokkrum sinnum undanfarið.Við erum að ræða um eina mest keyrðu akbraut landsins.Ég er ekki dómbær um hvernig best er að leysa þetta,ég held þó að hægt sé tímabundið að víkka og lengja beygjurnar og setja t.d.plaststýringar í stað múrsteinastýringa,sem væru tryggilega festar niður í malbikið.Þá væru aðvaranir staðsettar a.m.k.300 - 400 m. frá örvaskiltum,en þau sjást ekki í snjókomu og dimmviðri fyrr en að þeim er komið..Eitt er víst að vegagerðin verður að leysa þetta mál fljótt og örugglega.Þegar hefur tjón hlotist af þessum múrsteinsstýringum,hvað gerist næt ?