Enn og aftur er sala á kvóta að leggja sjávarbyggðir í rúst.Samfylkingin verður að láta til sín taka í þessum málum.
21.5.2007 | 22:04
Nú er það Flateyri,sem er að missa kvótann að þessu sinni úr sínu byggðalagi.Hátt í helmingur atvinnubærra í manna í bænum missir atvinnu sína og enginn veit hvað við tekur.Á sama tíma verða húseignir óseljanlegar og enskis virði.
Mannlegar hörmungar vega sífellt að fólki,sem byggir atvinnu sína á fiskvinnslu.Framsal og leiga á fiskveiðiheimildum,sem alþingi samþykkti 1991 hefur leitt til þess eins og alþjóð veit,að flestar minni sjávarbyggðir hafa lent í miklum hremmingum.Að heimila sölu og leigu á fiskinum,eru lög sem gengu gegn ákvæðum fyrri laga frá 1984 um ótvíræðan rétt þjóðarinnar á sameigin alls fisks innan fiskveiðilögsögunnar.Allt kjaftæði fyrrv.ríkisstjórnar ,að um nýtingarrétt fiskveiðihafa sé að ræða eru blekkingar,enda sjá það allir að meðhöndlun útgerðaraðila á öllum fiskveiðiheimilidum eru nýttar,sem um hreint eignarhald sé að ræða.
Samfylkingin getur ekki gengið til samstarfs við Sjálfstæðisfl.án þess að lögum um fiskveiðiheimildir verði breytt.Fyrsta aðgerð gæti verið að setja á byggðakvóta,sem væri óheimilt að selja eða leigja út úr byggðalæginu.Ríkissjóður leggði byggðalögunum til fiskveiðiheimildir fyrir hæfilegt gjald,sem væri að hluta til viðbót við heildarkvóta landsmanna í dag.Nýliðun í greininni væri hluti af þessum aðgerðum.Hér verður ekki greint frá þeim heildarbreytingum ,sem þarf að gera á þessu helsjúka kerfi,það tekur sennilega mörg ár.Við eigum að taka okkur til fyrirmyndar sjávarútvegsstefnu frænda okkar Færeyinga sóknarmarkið.
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt 22.5.2007 kl. 00:11 | Facebook
Athugasemdir
Sæll Kristján.
Vel mælt hjá þér eins og alltaf. Sendu Ingibjörgu sjávarútvegsstefnu frjálslynda flokksins og segðu henni að taka á þessum málum áður en hún gengur í eina sæng með Geir.
Sigurður hafberg Flateyri
Sigurður J. Hafberg (IP-tala skráð) 21.5.2007 kl. 22:24
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.