Hver var hlutur Helga S.Guðmundssonar og Finns Ingólfssonar í verðbéfum VÍS ?

Samkvæmt frásögn Sverris Hermannssonar fyrrv.bankastj.Landsbanka Íslands var söluverð bréfa Landsbankans í VÍS 6,6 miljarðar.Innan þriggja ára seldu kaupendurnir bréfin á 31,5 miljarða kr.Gróði seljanda gripdeildarmanna 25 miljarðar,samk.frásögn Sverris.

Hverjir lögðu undir sig þessa fjármuni Samvinnutrygginga eru það sömu menn sem nú koma bakdyramegin sem kaupendur í REI. Sverrir nefnir framsóknarm.Helga S.Guðmundsson og Finn Ingólfsson,sem hafi verið aðalkaupendur  umræddra bréfa á sínum tíma.

Sverrir segist hafa verið einn af eigendum Landsbankans, þegar þessi meintu afbrot voru framin á  eignum bankans.Hyggst hann þó seint sé,leita réttar síns vegna meðferðar þessa kóna á eignum bankans.Í leiðinni mun hann snúa sér til forsetadæmis Alþingis og óska eftir rannsókn þess á aðild  undirdáta þess.

Væri ekki rétt fyrir stjórn REI og Orkuveitu Reykjavíkur  að kanna vel hvort umræddir hluthafar geti hugsanlega skaðað viðskiptavild félagsins.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband