Ríkissjóður geri þegar í stað aðgerðir til að hjálpa heimilum í landinu.
27.3.2008 | 18:13
Boðaðar hækkanir á vörum og þjónustu eru á næstu grösum.Verðbólgan er að nálgast 10%,einkum vegna veikingar krónunnar.Hækkun á styrivöxtum Seðlabankans leiðir til hækkunar á bankalánum,en sem kunnugt eru yfirdráttarlán bankanna komin yfir 25% og almenn lánakjör ein þau verstu sem boðið er upp á hjá ríkjum sem hafa þróaða fjármálamarkaði.Vextir sem bjóðast t.d. frá VÍSA Íslandi eru á bilinu frá 20 - 22 % eftir hvaða innheimtuaðgerð er valin hverju sinni.Áður fyrr voru svona lán nefnd okurlán og voru menn sakfelldir fyrir.
Frjálshyggjan leikur okkur grátt,lánakjör á Íslandi eru ein þau verstu í víðri veröld og matvaran ein sú hæsta einnig.Við sitjum í forarpitti langvarndi óreiðu og óstjórnar í fjármálum þjóðarinnar.Þjóðin er lengi búin að bíða eftir aðgerðum ríkisstjórnarinnar,en forsætisráðhr.telur engra aðgerða þörf og Samfylkingin situr aðgerðarlaus og lofar upp í hástert samvinnuna við Sjálfstæðisfl.
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Athugasemdir
Sammála, held að Ríkið þurfi að koma sterkar að með aðgerðir til að losa þjóðina út úr þessu efnahagsástandið sem nú ríkir (sjá færslu á minni bloggsíðu í dag).
Kolbrún Baldursdóttir, 27.3.2008 kl. 20:36
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.