Af hverju eru engar niðurstöður bankarannsókna birtar - Í hvers þágu ?

Fréttamiðlar ríghalda kjafti um gang rannsóknarinnar.Hvaða hagsmunum er verið að leyna og í hvers þágu.Á meðan þjóðin fær engar fréttir um umfang og rannsóknarhætti,er ekki að vænta raunhæfðrar  og málefnalegrar umfjöllunar.Ósannar staðhæfingar og blekkingar ganga manna á meðal.Það er búið að framkvæma svo margar óhæfur og lögleysur í þessum málum frá upphafi að fyllsta ástæða er að rannsaka þann þátt mála sérstaklega.

Þrír og hálfur mánuður leið frá hruni bankanna og yfirtöku ríkisins þar til rannsókn hófst.Það eitt segir okkur meira en nóg hvaða hagmunum verið var að þjóna.Okkar gjörspillta stjórnsýsla virðist hafa verið um árabil samvirkandi þáttur í hinum meintu og almennu fjársvikamálum.

Þrátt fyrir þessar augljósu staðreyndir  og að Framsóknarfl.og þó einkum Sjálfstæðisfl.bera þarna höfuðábyrgð ,er þeim samkvæmt skoðunarkönnunum að stórvaxa fylgi.Varla getur skammtímamynni kjósenda verið svo ábótavant,að þeir gleymi jafnharðan hverjir áttu hlut að máli.Kannski hjálpar þeim tímabundið fréttabann á rannsóknum sakadómaranna. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Er það regla við rannsókn mála að allt er svo sem sýnist í fyrstu varðandi sekt og sakleysi og er dómstóll götunnar hinn endanlegi dómur og rannsókn yfirvalda formsatriði og nánast óþörf? 

Satt að segja hefur undirritaður tekið þá afstöðu að dæma engan þó hann líti óneitanlega illa út fyrir en að lögboðnir dómstólar hafa sagt sitt allra seinasta orð.

Eru miklar líkur til þess að Sjálfstæðis og Framsóknarmenn eru þeir sem hafað stoppað skýrslubirtinguna nokkrum dögum fyrir dagsetningu, (sem hefði örugglega verið ljóst að ekki yrði til á réttum tíma fyrir nokkrum mánuðum) og afar líklegt að það hafi Samfylking og VG gert vegna annarlegra hagsmuna og gjaldi þess fyrir bragðið í skoðanakönnunum?

Guðmundur 2. Gunnarsson (IP-tala skráð) 1.11.2009 kl. 16:26

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband