Ég tel að mennirnir hafi skapað Guð ,en ekki öfugt - Er það guðlast ?
25.3.2008 | 15:55
Tók mér bíblíuna í hönd og reyndi sem oftar að öðlast skilning á innihaldi hinnar helgu bókar.Enn er ég að reyna að trúa á eilíft líf eftir dauðann, að eitthvað sé eftir þegar við hættum að draga andann.Þekkingarleysi okkar á víddum alheimsins og reyndar eigin sálarheimi gerir okkur vanhæf að meta kenningar og trúarleg viðhorf bíblíunnar.
Í heilagri bók stendur,að guð hafi skapað himinn og jörf og einnig manninn í sinni eigin mynd. Sannarlega er bíblían meistaraverk,sem heldur utan um alla þessa guðsspeki.Sköpun himins og jarðar er okkur öllum ráðgáta og verður væntanlega aldrei upplýst,þrátt fyrir allar þær vísindalegu rannsóknir með fullkomnustu tækjum og tólum,sem nýtt er í þessum tilgangi.
Ég tel að mennirnir hafi skapað guð,en ekki öfugt og sömdu svo bíblíuna í áföngum með guð að leiðarljósi.Þessi skoðun mín hefur gert mig vantrúaðan á innihald hinnar helgu bókar og kynstrin öll af hvers konar kenningum og fræðiritum um trúarbrögð.Skoðun mín um gildi bíblíunnar um hinn kristilega boðskap er varðar góðverk,liðsinni við snauða, fátæka og sjúka og hvers konar blessun verður alltaf fylgifiskur trúarinnar,þó deilt sé um sjálfa sköpunina.
Árekstrar deilur og styrjaldir milli ólíkra trúarflokka hefa alla tíð verið til staðar,reyndar þurfa ekki trúarbrögð til eins og báðar heimsstyrjaldir á s.l.öld sýndu.
Áður fyrr var því haldið að fólki færi til Himnaríkis,þar sem það nyti dýrðar og eilífðar hvíldar eða til Helvítis og byggi þar við eilífa kvöl og pínu.Ég ætla að trúa því að kærleikurinn og allt það góða í sjálfum þér,sé okkar guð.Vonin um annað óskilgreint líf eftir síðasta andatak verður þá guðleg opinberun,sem allir horfa til með stóru ?
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 21:22 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Hauskúpa sem skrautmunur í hjólhýsi.
24.3.2008 | 20:30
Þá hefur einnig komið í ljós, að höfuðkúpan hafi verið notuð um árabil sem öskubakki.Það sem vekur athygli manns í þessu furðulega máli er,að engin hafi lagt sig fram að upplýsa af hverjum hauskúpan væri.Af myndinni að dæma ætti það ekki að fara á milli mála,að hér sé um mannshöfuð að ræða
Ég ætla ekki neinum neitt ljótt í þessu máli,en að fólk geri sér ekki grein fyrir hvers konar skrautmuni það hefur til daglegra nota er afar óvenjulegt.Sé höfuðkúpan komin frá lækni eins og nú er rætt um,ætti hún tæpast að vera í hlutverki öskubakka.Vonandi tekst að upplýsa þetta mál og höfuðkúpan fari í vígða mold.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 20:52 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Þjónusta við tveggja sæta stólalyftur í Kóngs - og Suðurgili í Bláfjöllum ábótavant.
22.3.2008 | 13:55
Það hefur árum saman verið kvartað yfir því að stólalyftur komi harkalega að þeim ,sem eru að setjast í lyfturnar.Tveir starfsmenn eru við hverja lyftu,annar þeirra á að hægja ferð stólanna meðan fólk sest í þá.Því miður er það oftar en ekki,að þessari starfsskyldu sé sinnt og fær maður stólanna aftan í kálfa og rass á fullum krafti nái maður ekki sjálfur handfestu í stólunum til að hægja ferð þeirra.Stundum falla menn úr stólunum við þessar aðstæður og geta hæglega slasað sig eins og dæmin sanna.
Ég hef stundað Bláfjöllin í áratugi og oft verið vitni að því að fólk hafi meiðst og reyndar gerðist það hjá mér í dag að fá fá þungt stólahögg á hægri fót og geng nú haltur í einhverja daga.
Lagið þetta strax,við þurfum og eigum ekki að sætta okkur við svona vinnubrögð.Mér þykir vænt um Bláfjöllin og starfsmenn,við eigum þarna fjöldskylduparadís,sem við skulum bera virðingu fyrir.
Nú er svo komið,að húsnæðislántakendur eru afkróaðir í vítahring innlendrar verðbólgu og erlendum myntkörfulánum.T.d.hefur svissneski frankinn hækkað um 38% og jenið um tæp 35 % á seinustu 12.mánuðum.
Húsnæðislánin stefna í 15 - 18 % fari verðbólgan í 8 - 10 % eins og spár bankana benda til.Þá er ljóst að höfuðstóll meðalhárra lána ( 14 - 16 milj.) munu hækka í 110 - 120 þúsund á mánuði.
Við þessar aðstæður ætlar forsætisráðhr.ekki að grípa til aðgerða til að bregðast við lækkuninni,sem orðið hefur á krónunni né ofurvöxtum og verðbólgu húsnæðismála.Hann telur að við þurfum ekki að búa okkur undir langvarandi kreppu.Hvað þarf að gerast til að ráðherrann vakni.Aðgerðir Seðlabankastj.gegn verðbólgunni eru engar,örmyntin okkar flýtur fram hjá honum.Stjórn Sjálfstæðisfl.á fjármálum þjóðarinnar með fjármálaráðhr.forsætisráðhr.og seðlabankastj.sem aðalmenn hefur sýnt okkur ljóslega hvert auðhyggjan leiðir okkar.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 21:25 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Steingeld ríkisstjórn - forsætisráðhr.telur gengishrunið ekki gefa tilefni til aðgerða.
19.3.2008 | 20:18
Ríkisstjórnin ætlar ekki að aðhafast neitt sérstaklega þó gengi ísl.kr. hafi lækkað yfir 20% síðustu daga segir forsætisráðhr.Hann segir ennfremur,að engin ástæða sé til endurskoðunar á flotgengisstefnuninni ,en rétt sé þó að hafa opin augun.Það sýnir þó smálífsneista með ráðhr.
Geir var einnig spurður,hvort endurskoðun gjaldmiðilsmála væri fýsileg í ljósi ástamdsins nú.Hann sagði það langtímamál,sem SKAMMTÍMAMÁL mættu ekki trufla.
Forsætisrráðhr.ræðir ekkert um hvernig eigi að ná tökum á verðbólgunni og lækka vextina né styrkja gjaldeyrisforða Seðlabankans.Stjórnvöld eru ekki með neina tilburði að senda mikilvæg skilaboð til þjóðarinnar varðandi verðtryggingu íbúðarlána og lána í erlendri mynt , þó greiðslubyrgði þeirra aukist hröðum skefum og séu orðin óbærileg fyrir þúsundir lántakenda.Fólk leitar í auknum mæli til Rauða Krossins vegna þunglindis og áhyggjur vegna fjármálastöðu sinnar og einnig til Ráðgjafarstofu um fjármál heimilanna.
Skerið niður útgjöldin segja valdherrarnir og lendið ekki í vanskilum.Steingeld ríkisstjórn á ekki nein önnur úrræði.Eins og ljóst má vera af skrifum mínum er ég afar óhress með aðgerðarleysi Samfylkingarinnar í ríkisstjórninni , til íhaldsins stóðu engar væntingar.
Yndislegir skíðadagar í sól og logni í Bláfjöllum.
16.3.2008 | 21:25
Hvað er skemmtilegra en vera á skíðum í faðmi fannhvítra fjalla,þar sem fjölskyldur með börnin sín ljóma af gleði.Ætli maður geti verið nánari náttúrinni en við svona aðstæður.Þegar fjöllin bera við heiðbláan himininn og af toppi Bláfjalla,sem er víðsýnasti staður hér suðvestanlands má augum líta óendanlega fegurð,þar sem tign fjallanna flettast saman við hafflötinn og eyjarnar.Höfuðborgarsvæði með nesjum,eyjum og vogum verður svo lítið af heildarmyndinni sem við blasir.Reykjanesfjallgarðurinn klæddur sinni hraunskykkju með ótal gígum og gufustrókum,sem stíga til himins.
Breytileiki náttúrunnar er svo óendanlegur,fagur og tígnarlegur,maður beinlínis festist við þessa stórfenglegu sýn. Það er okkur öllum svo mikils virði að skoða hið fjölbreytilega leiksvið náttúrunnar,sem er í reynd óendanlegur æfintýraheimur.
Ég er alltaf jafn heillaður og þakklátur fyrir hvern dag,sem við upplifum við slíkar aðstæður.
Dægurmál | Breytt 17.3.2008 kl. 00:53 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Á ekki orð til að lýsa eymd ríkisstjórnarinnar í efnahagsmálum.
13.3.2008 | 23:14
Hef verið erlendis undanfarnar vikur og tekið mér frí frá blogginu.Þakka þeim sem hafa samt heimsótt mig.Svo kom flensan og lagði mig og þá las ég blöðin.Náttúrlega hafði ekkert breyst nema verðrið .
Þrátt fyrir að rúmlega 200 miljarðar króna hafa bæts við skuldir almennings á s.l. fjórum árum vegna verðbóta sem bætast við höfuðstól verðtryggðra lána gerir ríkisstjórnin EKKERT í verðbólgumálum.Þetta þýðir í reynd að á þessu tímabili hafa tæpar tvær miljónir bæst við skuldir hvers heimilis í landinu.
Hagfræðingur ASÍ Ólafur Darri Andrason lét hafa það eftir sér sér í Fréttablaðinu í dag,að líta mætti á verðtrygginguna sem leið til að lifa við óstöðugleika.Veit ekki Ólafur, að engin þjóð innan ESB býr við verðtryggingu,þar er ekki leyfilegt að henda efnahagsóreiðunni yfir almenning.
Hvernig væri að hækka verðbætur lána um helming í t.d.30% og fella húsnæðiskosnaðinn út úr neysluvísitölu eins og ég hef margoft lýst.Vilji og réttlæti er allt sem þarf til að skera okkur niður úr verðbólgusnörunni.Jafnaðarmaðurinn, sem í mér býr er hreint út sagt að sprynga út af vesaldóm og úrræðaleysi þessar ríkisstjórnar í efnahags - og réttlætismálum.
Stjórnmál og samfélag | Breytt 14.3.2008 kl. 21:55 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Ríkisstjórnin ætti að sitja á neyðarfundi - Hún er ráðlaus og kemur engum böndum á verðbólguna.
26.2.2008 | 20:29
Höfuðstóll meðalhárra húsnbæðislána (15mil.kr.) hækka um 100 þúsund á mánuði.Húsverð hækkar ekki lengur,svo hér er um hreina eignaupptöku að ræða.Hér er um að ræða neyðarástand ,sem ríkisstjórnin VERÐUR að taka á. Fólk með lág - og meðallaun eru þegar í þúsunda tali komin í mikla fjárhagslega neyð.
Maður heyrir ekki um neinar aðgerðir af hendi ríkistjórnarinnar í þessum málum.Þeir bera þó fulla ábyrgð á ástandinu með úrræðaleysi og seinvirkum og röngum skilgreiningum.Af hverju þurfa húsnæðislán að vera verðtryggð hér,en hvergi annars staðar í Evrópu ? Af því leiðir ásamt himinháum vöxtum að verðtryggð íbúðarlán eru hér um 13%,en hjá ESB ríkjum þrefalt lægra 4 - 5 %.
Af hverju þurfa vextir að vera tvöfalt hærri hér en í ESB ríkjum ? Af hverju þarf matarverð að vera helmingi hærra á Íslandi en hjá ESB ríkjum ? Af hverju eru íslensk heimili þau skuldsettustu í heimi ?
Fyrst og síðast er þetta ástand um að kenna spilltum og vænhæfum stjórnvöldum með rangláta og ólýðræðislega stjórnarhætti,með eigin hagsmuni að leiðarljósi.Ríkisstjórnin bíður og bíður. með aðgerðir á meðan ungum íbúðareigendum blæðir.Miskunarlaust horfir ríkisstjórnin á ástandið og reynir ekki einu sinni að spyrna við fótum.Sjálfstæðisfl.hefur verið samfleytt í ríkisstjórn í 17 ár og ber því ásamt Framsóknarfl.höfuðsök á ástandinu.Kjósendur bera þó mestu sökina,þeir eiga að ekki að verðlauna sömu skussana með atkvæðum sínum.
Þegar maður horfir á umræður frá alþingi í tómum fundarsal,verður manni ljóst það virðinarleysi,sem þar ríkir.Við þurfum andlegt frelsi og lýðræði til að byggja upp menningalegt og mannbætandi þjóðfélag.
Davíð Oddsson búinn að leggja línuna um framtíð Vilhjálms.
25.2.2008 | 23:07
Enn er það Davíð,sem ræður ríkjum í Sjálfstæðisfl.Geir var búinn að gefa sterklega til kynna í málum borgarfulltrúa Sjálfstæðisfl.í borgarstjórn yrðu til lykta leidd í s.l. viku.Nú er ljóst af viðtali við formanninn í þættinum Mannamál í kvöld á stöð 2,að málið er enn í sama farinu.
Eins og kunnugt er var það haft eftir Davíð ,að Vilhjálmur yrði borgarstj. aftur þegar Ólafur hættir.Vilhjálmur veit hvar valdið er og lætur sér í léttu rúmi liggja hvað Geir segir.Vitanlega er þetta mikil ögrun við Geir,að fyrrverandi form.flokksins Davíð Oddsson sýni með svo beinum hætti afskipti af þessu máli.
Sparufé landsmanna í bönkum er ekki að fullu ríkistryggt - um lágmarksverd er að ræða.
23.2.2008 | 16:00
Samk.lögum frá 1999 er ætlað að veita innistæðueigendum í viðskiptabönkum og sparisjóðum lágmarkvernd.Um þetta fjallar m.a.Þorvaldur Gylfason prófessor í Fréttablaðsgrein í dag.Eins og kunnugt er gengur ísl.bönkum illa að fá lánsfé á þeim kjörum hjá erlendum lánastofnunum vegna skuldatryggingarálags ísl banka.Talið er að þeir loki a.m.k.tímabundið eða að mestu leiti fyrir lán til íbúðarkaupa af þessum ástæðum og á meðan Seðlabankinn heldur óbreyttum stýrivöxtum.
Ekki hefur verið upplýst,af hverju ísl.bankar fá ekki sömu lánakjör og aðrir bankar erlendis.Gæti ástæðan verið sú,að þeir eru skuldsettari og eignarstaðan svo bágborin að erlendir lánadrottnar treysta ekki lengur ábyrgðum þeirra .Eru víkingar ísl.útrásarinnar,sem margir hafa lofað í hástert búnir að missa tiltrú lánadrottna sinna vegna áhættu - og glæfralega viðskipahátta.Þá hafa laun bankastj.og ýmissa forstjóra stórfyrirtækja upp á hundruð milj.vakið mikið vantraut og reiði fólks á meðferð fjármuna hjá þessum aðilum.Margir hugleiða að breyta innistæðum sínum a.m.k.tímabundið í viðskiptabönkum sínum í erlenda gjaldeyrisreikninga á meðan mikil óvissa ríkir um fjárhagsstöðu bankanna.
Er að myndast biksvartur dökkvi út við sjóndeildarhringinn.?
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)