Færsluflokkur: Dægurmál
Tilboð ríkisstjórnarinnar til þjóðarinnar í íbúðarmálum til skammar.
17.11.2008 | 13:31
Til líkra aðgerða er nú gipið og gert var 1985 og 1991.Tilgangur um sérstaka greiðslujöfnunarvísitölu,sem greint var frá í gær,er að ekki verð'i misgengi á milli launa og greiðslubyrgði lána.Um er að ræða öll verðtryggð fasteignalán,sem fólk verður að sækja um til lánastofnunar hyggist það nýta sér ákvæði hinna nýju laga.
Sú upphæð sem fólk frestar að greiða fer inn á sérstakan biðreikning og greiðist síðar ,þegar launavísitalan verður orðin hagstæðrari neysluvísitölunni.Nú er launavísitalan 352 stig á móti 322 stigum neysluvísitölunni.Enn ein frystingin,að hverju að ýta vandanum stöðugt á undan sér í stað þess að leysa hann með skipulögðum hætti.
Þetta gæti mínkað greiðslubyrgði af lánum um allt að 10% hinn 1.des.n.k.og allt að 20% eftirm eitt ár frá því sem annars hefði orðið.
Um annað í þessum drögum ríkisstjórnarinnar er einhver samtíningur ,sem litlu sem engu varðar varðandi kaup og kjör fólks.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Forsætisráðhr.stefnulaus í myntmálum þjóðarinnar.
14.11.2008 | 21:14
Forsætisráðhr.vill ekki að Íslendingar taki upp evruna né sæki um aðild að ESB.Þetta kom fram á fréttamannafundi í dag.Hann ætti þó að vita að krónan er dauð þó jarðarförin hafi ekki farið formlega fram.Hann er því stefnulaus og stendur aðgerðarlaus á hliðarlínunni.Hann hefur þó fallist á að flýta landsfundi flokksins og að tilnefna nokkra menn til að gera athuganir og tillögur um stöðu ísl.þjóðarinnar gagnvart ESB ,sem yrðu lagðar fram á landsfundinum.
Samk.skoðanakönnunum er mikill meirihluti Sjálfstæðismanna samþykkur aðild að bandalaginu og forustumenn flokksins vísðvegar um landið hafa lýst stuðningi sínum að sækja um aðild.
Þá er vitað að varaformaður flokksins Þorgerður Katrín hefur ákveðið ásamt nokkrum þingmönnum flokksins að rétt sé að sækja nú um inngöngu í ESB vegna þeirra miklu og alvarlegu breytinga,sem orðið hafa í efnahagsmálum þjóðarinnar. Þá er líka vitað að Samfylkingin þrýstir mikið á ráðhr.og þinglið Sjálfstæðisfl.að taka sér stöðu við hlið þeirra í þessum málum.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Hvar eru inneignir sparisjóðseigenda,sem Íslendingum er ætlað að greiða.
13.11.2008 | 18:43
Hafa ísl.bankar í Evrópu flutt hundruð miljarða kr.í skattaparadísir í Karabiska hafinu og víðar?Óupplýst er ennþá hvað varð af þessum peningum,en fullvíst má þó telja að stærstum hluta þeirra hafi verið komið undan til landa,sem m.a.taka að sér vörslu ólögmætra fjármuna,sem blandast oftar en ekki aðgerðum hvers konar alþjóðlegra glæpahringa.
Það á ekki að líðast,að þeir sem hafa komið umræddum fjármunum undan réttvísinni ,geri ekki strax grein fyrir hvar þeir eru niðurkomnir og skili þeim aftur til sparifjáreigenda.Það á náttúrlega að yfirheyra Þessa aðila,sem eiga hlut að máli og setja þá í farbann þangað til fyrir liggur staðfesting þeirra um meðferð á umræddu fé.
Ríkisstjórnin og önnur viðkomandi íslensk yfirvöld verða að sýna í verki,að þeir hafi í frammi lögformlegar aðgerðir og rannsóknir á þessum meintu brotum,svo ríkisstjórnum erlendra ríkja,sé fullkomlega ljóst,að Íslendingar ætli sér að upplýsa þessi mál innan - sem utanlands og láta þá sem reynast sekir svara til saka.Ríkisstjórnin og aðrir lögboðnir eftirlitsaðilar hefa dregið fæturnar í þessum málum og staðið afar illa að allri upplýsingaöflun er lýtur að meintum sakarefnum.Við erum í reynd að takast á við langstærstu fjársvikamál Íslandssögunnar,sem geta ráðið um langa framtíð hvernig þjóðinni mun vegna.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Það virðist nokkuð augljóst að Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn og ríki innan ESB ætla að reyna að knýja Íslendingina til að gera upp við sparifjáreigendur á Bretlandi,Holllandi Þýskalandi og reyndar víða áður en kæmi til úthlutunar úr sjóðnum.Smáríki eins og Ísland eru sýnilega talin auðveld bráð,sem hægt sé meðhöndla að vild.Við höfum verið að vona að öll Norðurlöndin stæðu með bræðraþjóð sinni til að leysa okkur að hluta til úr skuldasnörunni,sem sífellt herðir meir að.Augljóst er að ísl.þjóðin gæti aldrei ein og óstudd komist út úr þessu skuldafeni.
Um ein miljón sparifjáreigenda í nokkrum Evrópulöndum virðast hafa tapað um eitt þúsund miljörðum,en ekki hefur ennþá verið upplýst um hver endanlega tala er.Þá hefur ekki heldur verið upplýst um hver fjárhagsleg staða ísl.bankanna er hérlendis.Maður hefði haldið ,að nóg hafi verið lagt á þjóðina okkar að vera með handónýta mynt,sem búin er að rústa hagkerfið,en að þjóðin þurfi samtímis að vera lömuð af ótta og sorg vegna aðgerða nokkra fjárglæpamanna,sem í skjóli afglapahátta pólutískra ráðhr.og óhæfra embættismanna ,sem hafa haldið verndarhendi yfir þeim.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Mannvænlegasti og skemmtilegasti þingm.Framsóknarfl.farinn af þingi.
11.11.2008 | 21:48
Það er mikil eftirsjá að Bjarni Harðarson skuli hafa hætt þingmennsku.Hann er málefnalegur og heiðarlegur og pólutískur vegvísir hans hreinn og beinn.Ég hefði nú haldið ,að hann hefði getað haldið áfram sem þingmaður,gjörningur hans var óhapp,en ekki gerður af yfirlögðu ráði.Hann vildi axla ábyrgð og hætti,sem er óþekkt í íslenskri stjórnmálasögu við slíkar aðstæður.
Bjarni vildi efla störf þingsins,efla frelsi og jafnfram rýmka lýðræðið. Það er mikill skaði fyrir þingið að missa Bjarna hann er líka einlægur og skemmtilegur persónuleiki.Ég las alltaf bloggið hans Bjarna og vona hann haldi áfram að skifa.
Óska þér góðrar framtíðar.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Hvar eru inneignir hundruð miljarða sparifjáreigenda ,sem ísl.bankar eru ábyrgir fyrir.
11.11.2008 | 21:33
Hafa ísl.bankar í Evrópu flutt hundruð miljarða kr.í skattaparadísir í Karabiska hafinu og víðar?Óupplýst er ennþá hvað varð af þessum peningum,en fullvíst má þó telja að stærstum hluta þeirra hafi verið komið undan til landa,sem m.a.taka að sér vörslu ólögmætra fjármuna,sem blandast oftar en ekki aðgerðum hvers konar alþjóðlegra glæpahringa.
Það á ekki að líðast,að þeir sem hafa komið umræddum fjármunum undan réttvísinni ,geri ekki strax grein fyrir hvar þeir eru niðurkomnir og skili þeim aftur til sparifjáreigenda.Það á náttúrlega að yfirheyra Þessa aðila,sem eiga hlut að máli og setja þá í farbann þangað til fyrir liggur staðfesting þeirra um meðferð á umræddu fé.
Ríkisstjórnin og önnur viðkomandi íslensk yfirvöld verða að sýna í verki,að þeir hafi í frammi lögformlegar aðgerðir og rannsóknir á þessum meintu brotum,svo ríkisstjórnum erlendra ríkja,sé fullkomlega ljóst,að Íslendingar ætli sér að upplýsa þessi mál innan - sem utanlands og láta þá sem reynast sekir svara til saka.Ríkisstjórnin og aðrir lögboðnir eftirlitsaðilar hefa dregið fæturnar í þessum málum og staðið afar illa að allri upplýsingaöflun er lýtur að meintum sakarefnum.Við erum í reynd að takast á við langstærstu fjársvikamál Íslandssögunnar,sem geta ráðið um langa framtíð hvernig þjóðinni mun vegna.
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 21:38 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Mannvænlegasti og skemmtilegasti þingm.Framsóknarfl.hættur á þingi.
11.11.2008 | 13:51
Það er mikil eftirsjá að Bjarni Harðarson skuli hafa hætt þingmennsku.Hann er málefnalegur og heiðarlegur og pólutískur vegvísir hans hreinn og beinn.Ég hefði nú haldið ,að hann hefði getað haldið áfram sem þingmaður,gjörningur hans var óhapp,en ekki gerður af yfirlögðu ráði.Hann vildi axla ábyrgð og hætti,sem er óþekkt í íslenskri stjórnmálasögu við slíkar aðstæður.
Bjarni vildi efla störf þingsins,efla frelsi og jafnfram rýmka lýðræðið. Það er mikill skaði fyrir þingið að missa Bjarna hann er líka einlægur og skemmtilegur persónuleiki.Ég las alltaf bloggið hans Bjarna og vona hann haldi áfram að skifa.
Óska honum góðs gengis.
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 21:52 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Öll aðkoma að skipulögðum rannsóknum á meintum brotum skandall.
6.11.2008 | 14:37
Hver ber ábyrgð á því,að ekki skuli hafa verið strax hafist handa um lögformlega rannsókn á starfsemi bankanna þegar ríkið tók við rekstri þeirra ? Fjármálaeftirlitið sá um framkvæmd á yfirtöku bankanna til ríkissins og hefði því strax átt að hafa samband við ríkissaksóknara um aðkomu hans embættis að málinu.Ljóst var þá strax af þeim upplýsingum,sem fyrir lágu að þyrfti að leita til erlendra sérfræðinga til að rannsaka bankana og ýms stór fjármálafyrirtæki í viðskiptum við þá.Ljóst var þegar í upphafi að fjöldi Íslendskra embættismanna væru vanhæfir að koma að rannsókninni,enda ynnu þ'úsundir starfsmanna hjá þessum aðilum.
Það skipti mestu máli að tryggt væri þegar við yfirtöku bankanna að koma í veg fyrir undanskot og breytingu gagna,sem hefðu að geyma veigamestu sönnunargögnin innan lands sem erlendis.
Þá þurfti einnig að kanna hina síðbúnu stjórnsýsluaðför Fjármálaeftirlitsins , Seðlabankans og ríkisstjórnarinnar og skattayfirvalda. að hinum ýmsu meintu þáttum málanna. Það hefur allt verið í baklás varðandi heildarrannsóknir þessara meintu fjársvikamála.Ýmsar getgátur eru uppi í þjóðfélaginu um ástæður þess,enda ríkir persónu - og pólutískir hagsmunir í veði.Ég hef litla trú á því að öllum steinum verði velt við eins og forsætisráðhr.segir.Af hverju beitti hann og dómsmálaráðhr. sér ekki strax fyrir að erlendir sérfræðingar kæmu til landsins til að gera heildarúttekt á umfangi málanna.
Dægurmál | Breytt 8.11.2008 kl. 00:58 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Fólk missir atvinnu og húsnæði -fer síðan úr landi í þúsundavís.
5.11.2008 | 22:03
Þetta er það versta sem getur komið fyrir eina þjóð,en var þó að mestu fyrirséð fyrir nokkrum mánuðum.Hvað gerði ríkisstjórnin ? Ég hef ekki séð neina aðgerðaáætlun af hennar hendi.Vextir hækka.verðbólgan og matvaran hækkar,reyndar eru öll efnahagsmál í rúst.
Verðtrygging lána fer þó verst með þjóðina af öllum slæmum verkum þessarar og fyrrverandi ríkisstjórna.Nú bætist atvinnuleysið við og þá fer fólkið í tugþúsundatali úr landi.Engin veit hvort eða hvenær það kemur aftur heim.Stjórnmálamenn blaðra um aðgerðir,en gera engar raunhæfar aðgerðir til úrbóta.Þekkingaskortur ,athafna - og skipulagsleysi ríkisstjórnar og alþingis virðist algjör.
Verðtryggingu húsnæðismála verður að afnems strax.Hækkanir á höfuðstól lánanna verður ríkisstjóður að taka yfir og gæti þannig orðið tímabundinn eigandi að íbúðunum,þar til verðbólgan verður komin niður í a.m.k.2 % .Á sama tíma verður að lækka vextina til samræmis við það sem gerist hjá ESB ríkjum.Stjórnvöld og reyndar þjóðin öll verður að berjast gegn atvinnuleysinu,ekkert er verra en missa fólkið úr landi.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Nú er komið í ljós að æðstu starfsmenn Kaupþingsbanka fengu afskrifaðar persónulegar skuldir hjá bankanum um 50 miljarða rétt áður en hann var yfirtekinn af ríkinu.Ekki hefur tekist að ná sambandi við fyrrverandi bankastjóra bankans þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir.
Fjármálaeftirlitið hafði ekki " heimilað "neinar slíkar afskriftir af skuldum starfsmanna hjá bankanum.Talið er líklegt að svipað hafi gerst hjá hinum bönkunum,en það verður staðfest á næstu dögum.Ef þetta reynist rétt er um að ræða stærsta fjársvikamál Íslandssögunnar.Það er augljóst að Íslendingar verða að fá hóp erlendra sérfræðinga á sviði fjársvikamála til að rannsaka málin til hlýtar.Hætt er við að þúsundir Íslendinga séu vanhæfir að koma að rannsóknum bankanna og því best að halda þeim utan heildar rannsóknar málsins.Verst er hvað dregist hefur að hefja rannsóknirnar,þær hefðu átt að hefjast um leið og bankarnir voru teknir yfir til ríkissins.Sú almenna spilling sem virðist hafa viðgengist í bönkunum bendir til þess,að hin opinbera stjórnsýsla sé meira eða minna tengd þeim fjársvikum, sem þar áttu sér stað.Rannsóknunum verður því að beina utan sem innan bankanna,sem gerir hana flóknari og tímafrekari.
Stöndum saman,stöndum saman sagði forsætisráðhr.við upphaf kreppunnar.Mín skoðun er sú að þjóðin eigi eftir að tvístrast og mikill ótti og hatur nái tökum á henni þegar hún sér hvernig allt var í pottinn búið.Hnignun á réttarfarlegu lýðræði hefur öllum verið augljós lengi, það hefur verið endalaust logið að þjóðinni og fréttir falsaðar eftir að auðhyggjan festi rætur og græðgin tók við.
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 22:20 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)