Rice kom hingað til Íslands í gærdag.Hún mótmælti ályktun alþingis Íslendinga varðandi meðferð fanga Bandaríkjshers í Guanttánamo.Taldi að við ættum að kynna okkur skýrslu frá Öryggis - Samvinnustofnun Evrópu þar að lútandi.Þá mótmælti hún einnig hvalveiðum okkar.Hópur þingmanna í fulltrúadeild Bandaríkjaþings hafa lagt fram ályktunartillögu að hvalveiðum þar í landi verði hætt bæði vísinda - og atvinnuveiðum.
Íslendingar ættu að banna hvalveiðar af tveimur megin ástæðum.Enginn markaður er fyrir hvalkjöt erlendis lengur og mjög vaxandi hvalaskoðun er orðinn vænlegur atvinnuvegur víðsvegar kringum landið,sem skapar þúsundum Íslendinga atvinnu og miljarða tekjur.
Hvalveiðar eru eins og kunnugt er illa séðar af miljónum manna um víða veröld.Þær verkar afar sterkt á tilfinningalíf fólks,sem telur hvalina stærstu dýr veraldar vera tign hafanna, skynsöm og hæfileikarík dýr með sterka sköpun.Þegar ég var til sjós,sem var reyndar ekki lengi,fann ég sterka kennd með þessum tilkomumiklu dýrum.Hvalverkunarstöðin í Hvalfirði var ekki stoppistöð mín á ferðum þar framhjá.
Umræða fór fram í þinginu í dag samk.ósk Helga Hjörvars í tilefni af greinar Kjartans Ólafssonar fyrrv.ritstj.Þjóðviljans um símahleranir.Ég tel afar líklegt að núverandi dómsmálaráðhr.Björn Bjarnason viti hvaða menn tilnefndu þá, sem skyldu hleraðir á þessum tíma.Samkvæmt þeirra tilvísun fór lögreglan fram á milligöngu dómsmálaráðhr. gangvart dómstólum.Þó svo að þeir menn, sem hér áttu hlut að máli séu allir látnir ætti dómsmálaráðhr.að upplýsa þjóðina um ,hvaða embættismenn og ráðhr.stóðu að baki þessum aðgerðum.Dómsmálaráðhr.staðfestir að dómarar hafi í öllum tilvikum úrskurðað þessar hleranir og þær séu því lögmætar.
Á þessum árum var lögboðin skylda að tilgreina nákvæmlega upplýsingaaðila áður en dómsúrskurður skyldi upphveðinn.Liggja slíkar upplýsingar fyrir í þessu máli? Óska eftir að dómsmálaráðhr.upplýsi þetta mál til fulls.Persónulega tel ég að dómsmálaráðhr.ætti að biðja alla viðkomandi aðila og ættinga þeirra fyrirgefningar á þessum hlerunum,sem leiddu ekki til sakfellingar nokkurs manns.Dómsúrskurðir í þessum málum breyta þar engu um.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 18:30 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Þarna geta ökumenn fengið af sér góðar myndir frá lögreglunni ef - ef -ef þeir aka of hratt.Þetta eru góðar fréttir,en flestir verða sjálfsagt að stíga léttar á bensíngjöfina og ætla sér lengri tíma milli staða.
Í undirbúningi er að setja upp hraðmyndavélar víðar á næstunni.Þegar búið verður tvöfalda veginn milli Keflav.og Reykjavíkur er líklegt að hámarkshraði á þeirri leið verði 110 km.
![]() |
Hraðamyndavélar á Suðurnesjum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Eftir að hafa hlustað á Kristján Júlíusson í eldhúsdagsumræðunum ,þar sem hann er að lýsa enn og aftur góðæri íslensku þjóðarinnar.Það virðist sem hann og fjöldi þigmanna Sjálfstæðisfl.fylgist afar takmarkað með lífskjörum þjóðarinnar.Nýverið var upplýst ,að a.m.k.27 þúsund lántakendur íbúðarlána skulduðu umfram eignir.Þeim fjölgar ört í 28% verðbólgu miðað við s.l.3 mánuði.Þá liggur einnig fyrir að heimilin í landinu eru ein skuldsettustu í heimi.
Í góðæri Sjálfstæðisfl.erum við með langhæstu verðbólgu í Evrópu,langhæstu vextina,hæsta matarverðið og handónýta mynt.Við ykkur Sjálfstæðismenn vil ég segja þetta:Hættið þessum blekkingum um góðæri á sama tíma og a.m.k. 1/3 hluti þjóðarinnar á í miklum fjárhagslegum vandræðum og þúsundir Íslendinga verða að fá matargjafir.Ósannyndi og blekkinar af þessum toga af yfirlögðu ráði er óheiðarlegur málaflutningur.Kannski er hann notaður af forsætisráðhr.í þeim tilgangi að réttlæta bullið , að engra sérstakra aðgerða sé nú þörf í efnahagsmálum þjóðarinnar.
Mikill meirihluti þjóðarinnar er nú samk.skoðunarkönnun óánægðir með efnahagsstjórnun ríkisstjórnarinnar.Það kæmi mér ekki á óvart að kjósendur færu að gefa ríkisstjórninni langt nef.Hún hefur ekki uppi neina aðgerðaráætlun í verðbólgumálum nema styrkja stöðu bankanna.Svo er hún að bíða eftir að krónan styrkist,sem er reyndar aðeins nú um 5% undir undir eðlilegum styrkleikamörkum.
Þá hefur verðbólgan þegar étið upp þá launahækkun sem gerð var vi ð ASÍ og reyndar 4 -5 % betur.
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 18:16 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Verður mál Guðjóns Þórðarsonar tekið fyrir í aga - og úrskurðarnefnd ?
27.5.2008 | 22:59
Það verður fróðlegt að sjá hvernig aga - og úrskurðarnefnd tekur á þessu máli.Það er nausynlegt að draga ákveðnar línur í þessum málum almennt.Það skaðar stórlega íþróttina ef menn geta opinberlega ráðist á störf þjálfara ,dómara og stjórnarmanna án þess að færa gild rök fyrir máli sínu.Störf knattspyrnudómara og stjórnarmanna eru líka háð ákveðnu eftirliti.
Á þessu máli og fjölmörgum öðrum þarf að taka af festu og móta þá fyrirmynd,sem íþróttinni sæmir.
Aðgerðarleysi ríkisstjórnarinnar í verðabólgu ( 28% ) og vaxtamálum afar bágborin.
27.5.2008 | 18:06
Einu úrræði ríkisstjórnarinnar gegn verðbólgu eru að styrkja krónuna,sem er þó aðeins um 5% veikari en hún ætti að vera.Meðan styrkleiki krónunnar var frá 58 -65 gangvart dollar voru verðgildi á útflutningsvörum okkar í algjöru lágmarki. 5% styrking krónunnar gagnvart evru og dollar læknar sáralítið verðbólguna.Við myndum sjálfsagt lítið finna fyrir því í matarkörfunni okkar.Lækning verðbólgunnar byggist sáralítð á styrkingu krónunnar.Eitthvað mun aðkoma Seðlabankanna á hinum Norðurlöndunum og fjármunir ríkissjóðs við Seðlabanka Íslands styrkja stöðu krónunnar.
Það er löngu síðan komi tími til að spyrna við fótum áður en allt fer í óefni.Verðbólga s.l.þrjá mánuði er nú 28% og 12,3% á ársgrundvelli.Hvað haldið þið þingmenn,að höfuðstóll íbúðarlána hækki á hverjum mánuði við slíkar aðstæður og húsnæðisverð fer lækkandi ? 27 þúsund lántakendur eiga núna ekki fyrir skuldum og þeim fjölgar ört við núverandi aðstæður.Þetta fólk og margir fleiri beina augum sínum til ríkisstjórnarinnar mánuð eftir mánuð í von um að heyra um einhverjar ráðsafanir í verðbólgu - og vaxtamálum.Þaðan berast engar fréttir,það er verið að vinna í þessu segir forsætisráðhr.en í reynd er ekkert sýnilegt verið að gera.Þeir una vel sínum hag með rúma miljón í mánaðarlaun.
Í viðræðuþætti Silfur Egils í gær kom berlega fram hversu hugmynda - og úrræðalausir formenn flokkanna eru í efnahagsmálum.Eru þessir menn í reynd aðeins að hugsa um eigin hagsmuni ? Svar mitt er já.Pólitískir vegvísar þeirra liggja beint heim til þeirra sjálfra.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Æskilegt að þjálfarar knattspyrnuliða hafi tak á tungu sinni -
26.5.2008 | 18:10
Nú er það Guðjón Þórðarson um leik Keflav.og ÍA.Menn verða að bera virðingu fyrir íþróttinni og náttúrlega sjálfum sér.Hafi menn eitthvað út á dómarana að setja eiga menn að kvarta í kyrrþey eða kæra skriflega til réttra úrskurðaraðila.Ekki vera að blaðra út um víðan völl og afsaka getuleysi liðs síns með því að andstæðingurinn hafi haft rangt við eða dómarinn hafi verið hlédrægur.
Knattspyrnan er vinsælasta íþróttagrein veraldar.Innan sem utan vallar er alls konar lýður,sem skyggir á íþróttaleiki sökum ölvunar og óspekkta.Við Íslendingar höfum að mestu verið lausir við þenna ófögnuð og vonandi verður það svo um ókomna tíð.
![]() |
Ummæli Guðjóns til umfjöllunar hjá aganefnd |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Rétt hjá Hillary Clinton að halda baráttunni áfram - 800 þingftr.munu ráða úrslitum.
26.5.2008 | 16:41
Vissulega hefur Hillary Clinton vindinn í fangið með 190 fulltr.færri en Barack Obama,sem skortir aðeins 56 ftr.til að ná kjöri.Hins vegar virðast margir nú hafa meiri trú á að Hillary myndi vinna John Mc Cain í komandi forsetakosningum.
Komi til þess,að hinir 800 kjörftr.ráði endanlega hver verður forsetaefni flokksins mun Hillary bíða þeirrar niðurstöðu.Persónulega hefði ég kosið að Hillary hefði unnið þessar kosningar og Obama yrði varaforseti.
Það hefur valdið mér nokkrum ótta hin miklu fjárráð Obama,hvort þau séu dulbúið framlag vopaframleiðenda.Mér hefur verið sagt af fólki,sem þekkir allvel til þessa mála í Bandaríkjunum,að það séu ótal leiðir til að fara fram hjá þeim reglum, sem gilda um peningaframlag til forsetakosninga.Þá hafa yfirlýsingar Obama um róttækar og skjótar breytingar Bandaríkjamanna í hernaðaraðgerðum og utanríkismálum verið fremur ógætilegar og lítt sannfærandi.Hugmyndir Obama um að ná sáttum við allar óvildarþjóðar Bandaríkjamanna eru ekki á rökum reistar,þar spila inn í svo miklir hagsmunir,bæði fjárhagslegir og pólutískir,sem alltaf verður mikill ágreiningur um.Það er hins vegar gott að menn hafi þær hugmyndir að leiðarljósi að hægt sé að bæta samskipti þjóða þ.m höfuðandstæðingana.
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 16:52 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Nú er aðeins heimilað af Þingvallanefnd að veiða með maðki,flugu og spún í þjóðgarðinum.
25.5.2008 | 14:26
Þetta eru tímabær fyrirmæli,beita á borð við makríl,sardinu,hrogn , smurefni o.fl.fylgir sóðaskapur og jafnvel mengun innan þjóðgarðsins.
Þá má aðeins veiða frá landi,bannað að nota báta og annað sem hægt er að fleyta sér á.Þetta eykur líka öryggi.
Sérfræðingar leggi mat á framlag þjóðanna í söngvakeppninni.
25.5.2008 | 14:24
Það ætti öllum að vera orðið ljóst að núverndi fyrirkomulag keppninnar endirspeglar á engann hátt gæði og flutning laga.Austur - og mið Evrópuþjóðir skipta þessu bróðurlega á milli sín með meirihluta þjóða að baki sér.Suður og norður Evrópuríkin gefa einnig hvort öðru sín atkvæði.
Við verðum væntanlega að snúa okkur aftur að fyrra skipulagi að sérfræðingar leggi mat á framlag hverrar þjóðar í söngvakeppninni.
Hafi menn einhverjar aðrar og betri hugmyndir um að fá hlutlausa niðurstöðu væri áhugavert að heyra það.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)