Færsluflokkur: Dægurmál

Skattaparadísir fyrir skattflóttamenn eru víðsvegar um heiminn.

Samkomulag Íslands við hin Norðurlöndin að hindra skattaflótta  á þessum Ermasundseyjum   kemur að litlu gagni,þar sem fjöldi eyja í Karabiskahafinu og fjöldi annara staða víðsvegar um heiminn gegna sama hlutverki.

Vitað er að stór hluti þess fjármagns sem vistaður er á svona stöðum kemur  m.a.frá alls konar afbrotamönnum og Mafíuhreyfingum viðsvegar í heiminum.Menn munu því auðveldlega geta fært viðskipti sín frá Ermasundseyjunum til annara staða.Það þarf að verða alþjóðleg samstaða um heimsbann við skattflótta,það gæti reynst sterkt vopn gegn hvers konar alþjóðlegum afbrotum.Við Íslendingar höfum mikilla hagsmuna að gæta eins og aðrar þjóðir í þessum efnum,hundruð ísl.fyrirtækja er skráð þar


Engar klámsíður verði leyfðar á blog.is - klám er andlegur vanþroski og úrkynjun.

Ég ætla bara að vona að lögreglan banni klámsíður á blogginu.Mér hefur alltaf funndist klámið vera eitt aumkunarverðasta samband lágkúru og uppskapningsháttar ,reyndar eins og sefjasjúk ímyndun.

Græðgin hefur fundið upp alls konar kynlífs uppákomur og viðskipti til að koma ár sinni fyrir borð á þessum markaði.Því miður hafa aðalega ungar stúlkur  orðið fórnardýr þessa glæpamanna,þar sem þær ganga kaupum og sölum milli vændishúsa,klúbba, hótela ,símavændisþjónustu o.fl.

Klámið er eins og menn líta lágkúruna neðan frá.Því miður liggja alltof margir hundflatir fyrir klám áróðrinum ,eru sífellt að leita  og trúa alls konar bulli um kynlífs athafnir,sem þeir geta best leyst sjálfir.

Fjármunir á þessum ólögmæta glæpamannamarkaði er gýfurlegur og talinn koma á heimsvísu næst á eftir fíkniefnamarkaðnum,en þræðir þeirra liggja reyndar saman eins og kunnugt er.Öll er þessi starfsemi búin að skjóta hér rækilega rótum í okkar litla þjóðfélagi,en reynum af öllu mætti að stöðva framgang klámsins.


Fylgi við ríkisstjónina hefur mínkað um 30 % frá því hún tók við völdum.

Þessi niðurstaða kemur ekki á óvart sé miðað við getu - og úrræðaleysi ríkisstjórnarinnar í efnahagsmálum.O stefna forsætisráðhr.í verðbólgu og vaxtamálum með handónýta mynt er svo vissulega farið að taka sinn toll einkanlega á kjörfylgi Sjálfstæðisfl.32 % fylgi þeirra í skoðanakönnun nú þýðir í raun um 28% fylgi þeirra sé miðað almennt við kjörfylgi þeirra í alþingiskosningum.Samfylkingin verður strax að láta á það reyna hvort hægt verður að ná þjóðarsátt um aðgerðir í efnahagsmálum við aðila vinnumarkaðarins.
Verðbólgan verður að fara undir 4% fyrir áramót.Verðbólgan á evrusvæðinu er nú 4,1 % á meðan hún er hér yfir 13%.Vill ekki ríkisstjórnin upplýsa þjóðina hvað veldur þessum mikla mismun.

Tek ekki á móti seðlum bara greiðskukortum sagði afgreiðslum.á kassa í Byko í Garðabæ.

Ég benti starfsm.á að krónan væri ennþá okkar  gjaldmiðill.Í þessum peningaks.eru engar krónur,þú verður að fara hinn enda byggingarinnar ca.100 m.frá og greitt þar með seðlum.Ég sagði þá kassamanninum,að ég myndi ekki versla hér framar og afhenti honum varninginn.Ég bý ekki til reglurnar hér sagði hann vandræðalega.

Ég taldi þó rétt að fá þetta skipulag staðfest og fékk mér vænan göngutúr í hinna enda verslunarinnar.Þar staðfesti ung stúlka á kassa að svona væru nú skipulagið og viðskipavinir væru ekki sáttir við þetta fyrirkomulag.


Hótað sprengingu á gleðigöngu Hinseigin daga eftir viku.

Hér á landi hafa í gegnum árin aðalega borist sprengjuhótanir í millilandaflugi og í flugstöðinni á Keflav.flugv.Sem betur fer hafa þær verið marklausar,en kostað flugfélög og löggæslu mikla vinnu og fjármuni.

Sjálfsagt er að reyna að rannsaka hver eigi þarna hlut að máli,en það getur reynst erfitt sérstaklega þegar fyrirvarinn er fremur stuttur.Sjálfsagt er að halda þessa göngu þó ekkert upplýsist um sendanda bréfsins.Komi hins vegar fleiri hótanir í sömu veru  getur reynst rétt,að takmarka eða banna áhorfendum að vera á gangstéttum og samkomuhaldi þeirra í miðborginni verði breytt.Lögreglan mun skipuleggja þessi mál í góðu samráði við forsvarsmenn Hinseigin daga.

Verum samt alltaf þess minnug að siðblindir nærast  af fordæmafullu hugarfari,sem getur valdið hvers konar ofbeldi.Þegar engin vitneskja liggur fyrir um hugsanlega gerendur er erfitt að meta aðstæður og ekki síður vegna þess að hryðjuverk af þessu tagi eru óþekkt á Íslandi.


Ennþá auglýst eftir aðgerðum ríkisstjórnarinnar í efnahagsmálum.

Langar að biðja bloggara að upplýsa mig um hvort eitthvað aðgerðarplan er í gangi af hendi ríkisstjórnarinnar í efnahagsmálum.Hef ekki hlustað á fréttir né lesið dagblöð undanfarna daga.Eru þeir á biðskyldu eða STOP merkinu ennþá ?

Saving Iceland stöðvuðu vinnu við jarðhitaborholu á Hengilssvæðinu.Þeim verði vísað úr landi.

Ég tel að stjórnvöld sýni þessum mótmælendum alltof mikla linkind.Þeim hefur ítrekað tekist að stöva tímabundið virkjunarframkvæmdir hér á landi..Að þessu sinni voru tveir tugir manna,sem höfðu læst sig við vinnuvélar og klifrað upp á borinn.

Þegar menn fara ekki að fyrirmælum lögreglu að fara út af þessum svæðum og segja ekki  til nafns eru þeir að brjóta landslög.Þeim á að vísa úr landi fyrir ítrekuð brot og fái hugsanlega ekki tímabundna endurkomu hingað til lands.

Þetta fólk kemur óorði á alla náttúruverndar menn,sem vinna að sínum mótmælum með röksemd og skynsemi í stað þess að ranghverfa staðreyndum og blekkja fólk.Ég hef alla tíð verið mikill aðdáandi náttúrunnar og notið hennar í ríkum mæli.Hingað koma oft eins og kunnug útlendingar til hjálpa Íslendingum að snyrta og fegnra landið.Hvernig væri að þetta fólk gerði einhverja nytsama hluti.Við uppskerum eins og við sáum,uppskera þessa fólks er alls engin,hún virðist frekar vera einhver sefjasjúk ímyndun.


mbl.is Með aðgerðir á Hellisheiði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Endurteknar spynukeppnir ungmenna á Hringbrautinni i Reykjavík.

Þær lýsingar sem borist hafa af þessum spyrnukeppnum eru afar hættulegar bæði vegfarendum sem ökumönnum.Eitthvað tjón hefur þegar hlotist af þessum aðgerðum og sjónarvottar telja,að litlu hefði mátt muna að hópur gangandi vegfarenda yrði fyrir bílunum nýverið þegar þeir lentu upp á gangbrautum og á leigubifr.

Ég hélt að lagalegar heimildir væru til að gera slík ökutæki upptæk og svifta ökumenn a.m.k 3 ár  okuleyfi.Eigendur ökutækja ( foreldrar ) bera fulla ábyrgð á,að þau séu ekki notuð í ólögmætum tilgangi í spyrnukeppnum á götum og þjóðvegum landsins.Þá eru bifreiðar  notaðar  við dreifingu og sölu fíkniefna.Heimilt er að gera slík ökutæki upptæk, sé um að ræða  alvarleg og víðtæk fíkniefnamál.

Ég ætla bara að vona að lögreglan hafi nægan mannafla til að  hafa eftirlit með þessum spyrnukeppnum og beiti til hins ýtrasra þeim viðlögum sem lög heimila.


Lækkun á eldsneyti hérlendis ekki í samræmi við lækkun á heimsmarkaðsverði.

Lækkun á eldsneytisverði hér helst ekki í hendur við tímamörk og verðlag á heimsmarkaðsverði.Þetta á að rannsaka til hlýtar,það á ekki að líðast að olíufélögin og ríkissjóður geti ráðið þessari verðmyndun að eigin geðþótta.Allar verðlækkanir eiga að skila sér strax til kaupenda.Af hverju gilda aðrar reglur þegar um verðhækkun er að ræða,þá hækkar verðið samdægurs eða næsta dag.

Svonga verðmyndanir og viðskiptahættir eru ólögmætir og ber ríkisjóður fulla ábyrgð á þessu,enda fá þeir stærstan hluta álagningarinnar í sinn hlut.


Skuldir heimilanna orðnar 947 miljarðar króna.

Þetta þýðir að hver einast Íslendingur skuldar 3 miljónir.Spáð er 14% verðbólgu í ágúst.Hvenær metur ríkisstjórnin að neyðarástand ríki ? Á hverjum mánuði hækkar höfuðstóll húsnæðislána heimilanna um hundruð miljóna og eignarstaða  tugþúsundir heimila er komin í mínus og um 900 fyrirtæki í landinu munu verða gjaldþrota eða draga stórlega saman rekstur innan skamms tíma. 

Ennþá koma engar aðgerðaráætlanir frá ríkisstjórninni þó hún segi að verið sé að vinna að úrlausnum.Hvers konar feluleikur ríkir um þessar úrlausnir ? Eftir mínum bestu heimildum er ekkert að ske hjá ríkisstjórninni,hún bíður bara eftir að krónan styrkist og eldsneytið lækki,en hefur enga framtíðarsýn í efnahagsmálum..Hefði nokkur trúað því fyrir rúmu ári síðan,að þessi ríkisstjórn með yfir 60 % þingmanna að baki sér yrði jafn úrræða - og getulaus eins og raun ber vitni.


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband