Var vitni að skemmtilegum atburði hjá 6-7 ára dreng í Kringlunni í dag.
17.12.2007 | 17:15
Var staddur í matsal á 3.hæð ásamt fjölda fólks,þar á meðal sat ungur ljóshærður drengur við næsta borð við mig.Allt í einu tekur hann til fótanna og hleypur að mannlausu borði skammt frá okkur og tekur þar gleraugu og hleypur síðan á miklum hraða niður stigann.Bannsettur strákurinn skyldi hann vera að stela gleraugunum.Ég fór fram á stigabrúnina og gat þaðan fylgst með honum.Þar sá ég hann stöðva gamlan mann,sem gekk við staf og afhenda honum gleraugun.Gamli maðurinn tók upp veski og stakk síðan einhverju í lófa drengsins.
Síðan kom strákurinn aftur að borðinu.Þetta var flott hjá þér strákur,sagði ég við hann.Hann horfði á mig smástund,síðan sagði hann.Mér líður svo vel ef ég get hjálpað sérstaklega gömlu fólki.Afi og amma vilja að ég geri helst góðverk á hverjum degi,ég bý heima hjá þeim.Ég hlustaði og horfði á þennan fallega glókoll,sem í jólaösinni var að hugsa um hvernig hann gæti glatt og hjálpað öðrum.
Ég klappaði á kollinn á honum þegar ég fór og sagði,Þú hefur líka glatt mig,þér gleymi ég ekki.Hann brosti fallega til mín.
Svona atvik kemur mér í jólaskap,þökk sé glókolli.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Handtaka Erlu Óskar eins og um væri að ræða hættulegan glæpamann.
14.12.2007 | 23:20
Vissulega gat útlendingaeftirlitð hafnað komu hennar til Bandaríkjanna,hafi hún gerts áður brotleg t.d.um lengd dvalartíma í landinu.Synjun um landgöngu þýðir í reynd að viðkomandi farþegi skal fara úr landi eins fljótt og auðið er undir eftirliti útlendingaeftirlitsins.
Um þetta er ekki deilt,heldur framkvæmd aðgerðarinnar varðandi hand - og fótjárnun hennar og óviðeigandi framkomu.Handtöku þeirri ,sem Erla Ósk hefur skýrt frá er með öllu ólögmæt,slíkt á aðeins við um eftirlýsta og hættulega glæpamenn.Þarna er augljóslega vegið að mannihelgi viðkomandi með niðurlægjandi hætti á grimmilegan hátt og ekki á neinn hátt í samræmi við meint brot.
Ég þekki þessi mál af eigin reynslu úr starfi mínu við útlendingaeftirlit á Keflav.flugv.Þegar komufarþega til landsins er synjað um landgöngu er viðkomandi skýrt frá málavöxtum og honum gefið tækifæri til að andmæla. Honum er jafnframt tilkynnt,að hann verði sendur úr landi til sama lands og hann kom frá.Í slikum tilvikum þarf ekki að beita harðræði. Sé hins vegar um að ræða aðila,sem grunaðir eru um mannsal,fölsuð vegabréf, meint brot á meðferð fíkniefna o.fl.alvarlegum brotaflokkum þá getur þurft að handjárna þá af öryggisástæðum á leið til fangelsis.
Framganga Ingibjargar Sólrúnar, utanríkisráðhr.í þessu máli er til sóma.Fljótt brugðist við á öruggan hátt.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Er dómsmálaráðhr.samþykkur að morðingi og nauðgari afpláni í opnu fangelsi ?
13.12.2007 | 18:32
Í blaðinu 24 Stundir er skýrt frá því ,að Stefán Hjaltesteð Ófeigsson,sem dæmur var í fjögurra og hálfs árs fangelsi árið 2004 fyrir tvær hrottalegar nauðganir og Atli Helgason,sem dæmdur var í 16.ára fangelsi fyrir morð árið 2001 afpláni nú á Kvíabryggju,sem er skilgreint sem opið fangelsi með lágmarks eftirliti.
Fangar sem afplána á Kvíkjabryggju þurfa ekki að undirgangast sálfræðilegt mat um hvort þeir séu færir um að afplána undir lágmarkseftirliti og njóta ákveðins frelsi s.s.dagsleyfi án fylgdar.
Mín skoðun er sú,að hættulegir afbrotamenn eins og nauðgarar og morðingjar eigi undir engum kringumstæðum að vistast í opnu fangelsi.Þeir eiga að afplána á Litla -Hrauni,það er eina fangelsið sem fullnægir þeim öryggiskröfum kröfum,sem við gerum fyrir vistun hættulegra afbrotamanna eins og hér um ræðir.
Dómsmálaráðhr. og Fangelismálastofnun bera ábyrgð á þessum málum.Það er ekki hægt endalaust að afsaka skort á fangelisrými um úrræðaleysi á afplánun fanga.Það var meira að segja í tíð Ólafs Jóhannessonar þáverandi dómsmálaráðhr.búið að finna lóð undir fangelsi og gera frumteikningar fyrir rúmum 40 árum síðan.
Svo virðist sem Björn Bjarnason,dómsmálaráðhr.ráði ekki við þennan málaflokk og geri sér ekki grein fyrir alvarleika málsins.Við þurfum nýtt deildarskipt fangelsi,þar sem aðbúnaður og öryggismál fanga er í lagi.Þeir fái góða uppbyggilega aðstöðu til náms og frístundaiðju.Fíkniefnaneysla í fangelsum verði gerð refsiverð,núverandi ástand er öllum sem hlut eiga að máli til skammar.
Það er afar slæm lífsreynsla fyrir þolendur hættulegra afbrotamanna,að vita af þeim í opnum fangesum eða eiga von á símtölum frá þeim.Svona gerum við ekki hæstvirtur dómsmálaráðhr.
Hugmyndir um aðgerðir til að hækka tekjur láglaunafólks í komandi kjarasamningum,
11.12.2007 | 18:28
Skattleysismörk hækki á kjörtímabilinu í 140 þúsund pr.mán.Lágmarkslaun hækki í 150 þúsund kr.pr.mán.á kjörtímabilinu,önnur laun verði ekki hækkuð.
Verðbólgumarkmið verði 2.5%.Verðtrygging og stimilgjöld verði afnumin af húsnæðislánum.Sterklega kemur til greina að verðtryggja laun, fari verðbólgan yfir viðurkennd verðbólgumarkmið Seðlabanka og aðila vinnumarkaðarins.Það gæti orðið góður hemill á verðbólguna ef atvinnurekendur og bankar yrðu að bera þunga verðtryggina í stað þess að velta verðbólgunni stöðugt á herðar lántakenda og neytenda.
Framangreindar kjarabætur ættu ekki að vera verðbólguvaldandi séu þær framkvæmdar á skipulegan hátt miðað við að framkvæmdir og atvinnustigið í landinu valdi ekki þensluástandi.Það er ekki nóg að ríkisstjórnin taki vind úr seglum,fyrirtæki í byggingaiðnaði og bankar verða að draga stórlega úr framkvæmdum.Þá verður þjóðin að skilja,að hin óhóflega neylsa,sem skapar m.a. þennan gýfurlega viðskipahalla verður að linna.
Friðarsúlan hennar Yoko Ono í Viðey heillar mig - Táknræn og falleg.
8.12.2007 | 22:21
Súlan hefur svo sannarlega fangað hugi og hjörtu Íslendinga.Hugarheimur okkar leitar líka til Bítlana þegar við horfum á súluna,lögin koma svo sterkt fram að maður fer strax að raula.En að þetta sterka alheims friðartákn skuli hafa verið valinn staður á Íslandi í Viðey, gerir kröfur til þjóðarinnar,að við stöndum vörð um friðinn og verðum þar ávallt í fylkingarbrjósti.
Súlan sendir ljósgeisla sína beint til himins og það mun hún gera fram að áramótum samk.fréttum í kvöld.Kærar þakkir Yoko One að lofa okkur að njóta hennar yfir jólatíðina.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 22:25 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Markaðsverðmæti félaga sem skipa úrvalsvísitölu Kauphallarinnar hafa lækkað um 750 miljarða á háflu ári.
7.12.2007 | 22:51
Það er ljóst að sá kóngulóavefur sem tengir þessi fyrirtæki saman tekur þau öll með sér í fallinu,að undanteknu Marel.T.d.hefur markaðsverði Exista eitt og sér lækkað um rúmlega 200.miljarða frá því í sumar,en alls hafa fyrirtækin tapað 750 miljörðum frá því í júlí.Ég hef margsinnis í blaðagreinum og á blogginu bent á að þessi glafralega útrás margra Íslenskra fyrirtækja, gæti hvenær sem er sprungið fyrirvaralaust,þar sem hvorki eignar - né viðskipaleg staða þessa aðila væri nægjanlega traust.Nú er að koma á daginn,að þessi fyrirtæki voru meira og minna einn blekkingarvefur,sem gerðu kaupendur bréfa að trúfíflum. Fyrirtæki og einstaklingar láu hundflatir fyrir útrás hinna Íslensku víkinga.Íslendingum virðist hafa verið gefin sú "náðargáfa" að falla ofan í þá svartavillu að gera þetta eða hitt,svo lengi sem einhverja gróðavon er að hafa.Maðurinn er náttúrlega alltaf að stærstum hluta það sem umhverfið og þjóðfélagið hefur gert hann.
Það er búið að ranghverfa þessi viðskipti og endalaust að blekkja fólk og hreinlega draga það inn í viðskipti,sem það hefur enga þekkingu á.Með miskunarlausum áróðri hefur tekist að lemja inn í þjóðina,að hún eigi að fjárfesta í útrásinni,en þjóðin veit náttúrlega ekkert hvað stendur á bak við þær fjárfestingar.
Vest af öllu er þó,að auðtrúa stjórnir lífeyrissjóða hafa fjárfest miklar fjárupphæðir í þessum loftkastölum útrásarinnar,sem m.a.mynda úrvalsvisitölu Kauphllarinnar.Vitað er nú þegar að þeir hafa tapað tugum miljarða.Hér er um langtíma fjárfestingar að ræða hjá lífeyrissjóðunum og því ekki auðvelt að losa sig frá þeim viðskiptum.Kannski verður það hlutskipti lífeyrisþega á komandi árum,að laun þeirra lækki,vegna hinnar "rómuðu útrásar víkinganna."
Það er á engan hallað,að Freyja hafi fyllilega verðskuldað þessi verðlaun.Þessi fatlaða stúlka er einstök hetja og fyirmynd okkar allra.Hún sannar að fatlaðir hafa áhuga,vilja og getu að gera svo marga áhugaverða hluti fyrir samfélagið.Þeir skipta því miklu máli fyrir þjóðfélagið engu minna en þeir sem heilbrigðir eru.
Freyja sagði er hún hlaut verðlaunin,að þau væru heiður og hvatning fyrir hana.Jafnframt benti hún á að auðvitað gæti maður alltaf gert betur og lært meira.Þessi verðlaun gæðir tilveruna meiri litadýrð og gleði,sagði hún .Við erum ekki bara einhverjir þjónustuþegar,sem sitja á hliðarlínunni og horfa á lífið þjóta framhjá.Við viljum vera þátttakendur og við skiptum máli í samfélaginu,sagði þessi yndislega og stórgreinda stúlka.
Freyja er löngu búin að sýna okkur ,að við þurfum að vernda og rýmka lýðræðið og efla andlegt frelsi og kærleika til að byggja upp menningalegt þjóðfélag.Hennar háleitu hugsjónir um lífið og tilveruna ættu að vera okkur öllum leiðarljós í þeim efnum.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 20:18 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Tekjuskattur verði 15% á næsta árií stað ca.22%,sem nú er.Útsvar haldist óbreytt,13 - 14 %.Skattar verði ekki lækkaðir á fyrirtækjum á þessu kjörtímabili ,en þeir eru nú 14% eins og kunnugt er.
Skattleysismörk hækki á næsta ári úr 90 þús.í 110 þús.en síðan um 10% árlega næstu fjögur ár eða þar til skattleysismörkin hafi verið leiðrétt til samræmis við hækkun launa s.l.tvo áratugi. Því miður er ekki hægt að hækka skattleysismörkin í einum áfanga í 140 þús. það myndi kosta ríkissjóð um 50 miljarða,en væri hins vegar auðvelt á þessu kjörtímabili ef vilji er fyrir hendi.
Gaman að heyra álit bloggara á þessum tillögum eða hvað annað, sem menn hafa til málsins að leggja.
Tryggingarstofnun rukkar inn ofreiknaðar tryggingabætur - Laun öryrkja lækka - Þjóðarskömm.
2.12.2007 | 21:55
Fólk með um 90.þúsund kr.laun með tryggingabótum er nú rukkað um tugi og hundruð þúsunda af Tryggingastofnun fyrir ofreiknaðar tryggingabætur fyrir mislöng tímabil.Það er þjóðarskömm af þessu framkvæmdamáta að fólki sé ætlað að lifa af þessum smánartekjum samk.einhverjum stöðluðum útreikningum Tryggingarstofnunar.Er ekki kominn tími til að spyrna við fótum áður en allt er komið í óefni.Það hýtur að vera alvarleg bilun í sálargangverki þeirra sem bera ábyrgð á þessu.Það setur að manni þunglyndi að horfa upp á svona miskunarlausa stjórnsýslu.
Einnig er verið á sama tíma að lækka laun öryrkja vegna fjárskort í lífeyrissjóði.Félagsmálaráðherra segist ekkert geta í málum þeirra gert,nema bjóða þeim 100.milj.kr.úr ríkissjóði,en öryrja skortir á þriðja hundað mikj.kr.til að endar nái saman.Er ekki verið að ganga frá fjárlögum á þingi þessa dagana og því hæg heimatökin að lægfæra laun öryrkja.
Það er eins og það sé höfuðlaus stjórn án nokkurs vegvísis,sem fer með þessi mál.Þessi sjálfslýgi stjórnmálamanna er eins og illkynjað mein,sem ekki er hægt að lækna.Þeir kunna helldur ekki að skammast sín.
Hvernig öðlast lögreglan vinsemd og virðingu almennings.
29.11.2007 | 19:44
Mér verður oft hugsað til lögreglunnar í þá gömlu góðu daga,þegar hún gekk um götur borgarinnar,ræddi við vegfarendur og lét sér annt um vegferð þeirra og barnanna.Lögreglumenn frá þessum árum sögðu mér að þeir hefðu eignast fjölda vina,sem oft hefðu líka gefið þeim veigamiklar upplýsingar um grunsamlegt athæfi borgaranna.Þetta mynnti mann á bresku lögregluna,sem alltaf er tilbúin að veita vegfarendum hjálparhönd,sérstalega öldnu fólki og börnum og fyrir henni er borin mikil virðing.
Nú heyri ég ýmsa segja,að fyrstu kynni þeirra af lögreglunni sé þegar þeir hafi brotið eitthvað af sér.Ekki veit ég hversu réttmæt þessi skoðun er,en ég er sannfærður um að persónuleg umgegni og kynni af vegfarendum hvar sem er í þjóðfélaginu væri öllum til góðs.Lögreglan á að gera meira en halda uppi lögum og rétti,hún á að virka á þjóðarsálina,sem vinir,verndarar og hjálparhella eftir því sem við á.
Vona að lögreglustjórinn í Reykjavík og starfsbræður hans vítt um landið séu að endurskoða þessi mál öllum til heilla.