Færsluflokkur: Dægurmál

Borða minna og hreyfa sig meira -burt með fæðubótaefnin og megrunarvörur

Fæðubótaefnin eru ætluð til viðbótar við venjulegt fæði.Hvers konar megrunarefni til að auka fitubrennsluna eru markaðssett undir alls konar formerkjum.Satt best að segja finnst mér þetta komið út í slíkar öfgvar,græðgin ræður ferðinni ,en ekki heilsusamlegt líferni.Áhrifamesta þyngdarstjórnunin er jákvætt hugarfar, bætt matræði og heilbrigður lílstíll.

Það þarf engin töfralyf til að halda réttri þyngd,borða bara aðeins minna og hollann mat og umfram allt hreyfa sig  a.m.k 3-4 sinnum í viku og helst daglega sé þess kostur.Ég hef tileinkað mér þennan lífsstíl til að halda kjörþyngd með góðum árangri alla mína æfi.

Það er með ólíkindum hvað fólk er auðtrúa  og móttækilegt fyrir þessum fæðubótaefnum,og skyndilausnum í hvers konar töfluformi .Við fáum öll efni,sem við þurfum úr hollum mat. Þá kosta þessar vörur offjár.

Látið ekki markaðssetningar vera ykkar leiðarljós í matræði,þið sjálf eigið að byggja upp ykkar eigið heilbrigði.


Skjöl hjá FBI um Halldór Laxness ógna þjóðaröryggi Bandaríkjanna.

Ættingar Laxness hafa beðið Ingibjörgu Sólrúnu,utanríkisráðhr. að kanna hvort þeir geti komist í skjöl honum tengd,sem vistuð eru hjá alríkislögreglunni FBI.Utanríkisráðhr.hefur orðið við beiðni ættingjanna.Umrædd gögn eru búin að vera hjá FBI yfir 60 ár.Guðný dóttir Halldórs segist enga skýringu hafa á þessari miklu leynd,sem yfir þessu máli hvíli,nema ef vera skyldi til verndar öðrum,sem kynnu að tengjast hlerunarmálum.

Þetta hefur haft þau áhrif,að ekki var hægt að gefa út verk Laxness í 50 ár í Bandaríkjunum.Guðný heldur því fram að njósnabeiðnin hafi á sínum tíma komið frá Bjarna Benediktssyni og ísl.ríkistjórninni.Í dag myndi maður kalla þetta landráð segir Guðný.

Vissulega væri fróðlegt að vita hvaða fleiri upplýsingar  eru vistaðar um Íslendinga hjá FBI,sem þeir hafa aflað með símahlerunum og öðrum hætti hérlendis m.a,á kaldastríðs árunum.Sú rannsókn,sem fram fór nýlega varðandi  Jón Baldvin Hannibalsson,þáverandi utanríkisráðhr.um meintar símahleranir í ráðuneytinu voru gagnslausar,þar sem þeir sem yfirheyrðir voru löggæslumenn,sem bundnir voru trúnaðarheiti í starfi og höfðu því enga lagalega heimild til að skýra frá málavöxtum.Rannsóknin leiddi af þeim sökum ekkert saknæmt í ljós og fullyrðingar  Jóns Baldvins standa ennþá óupplýstar.


Það er hörmulegt að sjá borgarflt.ítrekað harmi slegna vegna eigin mistaka.

Svo mikla samfélags byrði hafa Björn Ingi og Vilhjálmur borið í störfum sínum fyrir Reykjavíkurborg,að þeir hafa báðir tárast í beinni útsendingu.Fyrst var það Björn Ingi þegar hann sleit samstafinu í borgarstjórn og lýsti fyrir flokksmönnum aðdraganda gjörningsins og nú beygir Vilhjámur af þegar skýrsa v/REI er birt.

Eins og þú sáir svo munt þú uppskera.Báðir þess menn hafa  verðskuldað orðið fyrir mikilli gagnrýni,Björn Ingi hættur í borgarstjórn,en Vilhjálmur lafir,hefur tímabundið eftirlátið Ólafi (6527) borgarstjórastólinn í eitt ár,en ætlar svo sjálfur að verða borgarstj.á ný.Maður heyrir ekki nokkrun af samstarfsmönnum Vilhjálms í borgarstjórn andmæla þessum áformum hans.Í þessum flokki eiga menna að hlýða og ganga í fótspor foringjans,sem hefur svo baktryggt sig hjá valdhöfum flokksins.

Það þarf mikla einfeldni og  ósvífni að ranghverfa málefnum og blekkja fólk,sem hefur treyst manni fyrir málefnum borgarinnar.Eitt aumkunarverðasta og lágkúrulegasta í þessum málum er þegar menn reyna að losna undan ábyrgð og  afleiðingum verka sinni með  endalausu rugli,ósannyndum og afglapahætti.


Leiðin til að losna undan eigin ábyrgð er að fara úr borgarstjórn.

Nú er orðið endanlega ljóst eftir birtingu skýrslunnar, hversu alvarleg mistök Vilhjálmar þáverandi borgarstj.voru í svonefndu REI máli.Hann reyndi rétt einu sinni í Kastljósi í kvöld að afsaka afglapaverk sín og hann væri búinn að biðja þjóðina afsökunnar.

Afglöp hans verða vart rakin til þekkingarskorts,ósannar staðhæfingar og gallaðar skilgreiningar virtust vera af yfirlögðu ráði í þágu ákveðinna aðila,sem hefðu getað skaðað Hitaveituna um miljarða kr.Ruglandaháttur Vilhjálms í viðtölum við fjölmiðla í þessu máli voru með ólíkindum,en þegar Björn Ingi sprengdi meirhluta Sjálfstæðisfl.hélt maður að þáttur Vilhjálms í borgarmálum væri á enda.

En þá var bara hálfleikur hjá Vilhjálmi,náði aftur meirihluta í borgarstjórn með Ólafi (6527) og gerði hann að borgarstjóra í eitt ár,síðan myndi hann  sjálfur taka við.

Allt gerist þetta með fullri samþykkt borgarfulltrúa Sjálfstæðisfl.a.m.k.andmælir engin opinberlega,en jarðarfarasvipur þeirra var þó áberandi þegar Vilhjálmur tilkynnti fyrir fjölmiðlum hinn nýja borgarstj.

Samk.skoðanakönnun hefur Vilhjálmur um 3% atkvæða og Ólafur eitthvað svipað.Hvers eiga Reykvíkingar að gjalda að sitja uppi með svo svona endalausa fíflhyggju.


Er heimilt að vista tvo fanga í sama klefa ? Hver er afstaða dómsmálaráðhr.til málsins ?

Það væri æskilegt,að dómsmálaráðhr.skýrði fyrir þjóðinni hvaða áætlanir séu framundan um úrlausnir í fangelsismálum í framtíðinni..Ætla má að alvarlegum afbrotum fjölgi á næstu árum og afplánunum fjölgi að sama skapi,sem kallar á meira fangelsisrými.

Rætt hefur verið í áratugi að byggja nýtt og veglegt fangelsi og nú hin síðari ár um fangelsi hér í nágrenni Stór - Reykjavíkursvæðisins,sem m.a. væri nýtt fyrir gæsluvarð,en ein og kunnugt er afar erfitt og kosnaðarsamt  að vista menn á Litla - Hrauni í gæsluvarðhaldi sökum fjarlægðar frá Reykjavík.

Ég ætla bara að vona að þetta ástand ,sem nú ríkir að hafa tvo fanga í sama fangaklefa sé neyðarráðstöfun,sem ljúki sem allra fyrst.


15 - 20 % þeirra sem voru í afplánun á s.l.2 - 3 árum ,voru af erlendu bergi brotnir

Um 7% Íslendinga eru nýbúar ,sem hafa koma erlendis frá eða um 22.þúsund manns.Það vekur athygli að brotatíðni þessa fólks er  er 2-3.sinnum hærri en hjá innbornum Íslendingum.Rétt er þó að hafa í huga,að nokkrir erlendir menn eru meðtaldir í þessum tölum,sem hafa verið teknir við komu til landsins með fíkniefni og vegna fleiri brota.

Hér er ekki verið að reyna að ófrækja nýbúa,heldur benda á tölur,sem hljóta að vekja athygli.Það kostar mikla fjármuni að láta þessa menn afplána langa fangelsisdóma hérlendis,best væri að senda þá til síns heimalands,en um það þarf að semja við viðkomandi ríki.

Mismunandi skoðanir eru um,hvort rétt sé að tilgreina þjóðerni þeirra,sem hæsta brotatíðni hafa.Þá gætu saklausir borgarar þess ríkis orðið fyrir aðkasti hér og hvers konar einelti.Hins vegar gætu atvinnurekendur haft bein áhrif á hvaða fólk fær hér vinnu.Sjálfsagt er þetta allt umdeilanlegt,en þarf eigi að síður að skoða vel.Við höfum að mestu búið í friðsælu landi og verið laus að mestu leiti við ásókn útlendinga í atvinnu hér á landi.Nú er þetta allt breytt,við skuldbundin að taka við fólki frá ESB löndum.Það verður ekki flokkað í hópa eftir þjóðernum,við erum komin í þessa hakkavél,þar sem öllu ægir saman.Við eigum að ræða þessi mál hispurslaust,en ekki láta þróast hér alls konar andstöðuhreyfingar milli þjóðerna,eins og þekkt er nánast um alla Evrópu.


Sterkt framboð að Obama verði varaforseti Clinton.

Nú styttist óðum í að kosið verði í 20 fylkjum í Bandaríkjunum.Skoðanakannanir eru nokkuð misvísandi,nái Clinton að höfða nógu sterkt til kvenna ætti hún sigurinn vísan,en Obama virðist höfða breitt til kjósenda og gæti komið öllum á óvart.

Ætla má að Obama hafi með hrífandi framkomu sinni höggvið stór skörð í raðir kjósenda Clinton.Þetta verður spennandi,en mestu skiptir að Demokratar vinni í komandi forsetakosningum,en hafi jafnframt áfram meirihluta í báðum deildum þingsins.Það býður næsta forseta Bandaríkjanna  mikið starf að gjörbreyta utanríkismálastefnu þjóðar sinnar og reyna að endurheimta  traust og virðingu annara þjóða.

Heimsveldisstefna Bandaríkjanna undanfarin ár, þar sem hervaldi og sífelldum ógnunum hefur verið beytt í samskiptum þjóða og alþjóðalög virt að vettugi,verða skráð í sögunni sú þjóð sem hvað mestum hörmungum hafa valdið í veraldarsögunni.


Um hundrað skólakrakkar kaupa pyslur og kók á tilboðsverði í morgunverð.

Í Kastljósi í kvöld voru viðtöl við nokkur ungmenni í skóla,sem voru að fá sér pyslur og kók í morgunverð á 190 kr.Þá upplýsti afgreiðslustúlkan að ásóknin í pyslurnar og kókið væri svo mikil, að hleypa þyrfti unglingunum inn í hollum,hún gat þess einnig að sum kæmu þrisvar sinnum yfir daginn.

Maður lætur sér detta í hug hvort þessi ungmenni fái engan morgumverð og pylsurnar komi í staðinn eða séu ábót.Ég ætla ekki að fara að deila á unglingana eða heimili þeirra,en þetta kom mér sannarlega á óvart hversu almennt þetta var í viðkomandi skóla.Hollur morgunverður er hverjum manni mikilsverður.Ég held að vinnutími og tímaleysi beggja foreldra kunni að hafa eitthvað að segja í þessum efnum.Þá er þessi sykurdrykkja,salgæti og sjoppumatur ákaflega fitandi og mætti gjarnan upplýsa ungmenni og reyndar alla um afleiðingar slíks matræðis.


Ákæruvaldið á að þyngja dóma fyrir kynferðis - og fíkniefnabrot.

Nýgenginn 5.fimm ára  dómur tveggja útlendinga fyrir afar grimmdarlega nauðgun,gæti verið vísir að þyngingu dóma fyrir kynferðisafbrot.Ég ætla svo sannarlega að vona að svo sé,því dómar í þessum málaflokki hafa verið dómskerfinu til háborinnar skammar.Afleiðingar nauðgana vara alla æfi þolandans og fyrir slík brot á að refsa í samræmi við þann refsiramma,sem hegningarlög leyfa.

Sam gildir um umfangsmikil fíkniefnabrot,sem nú eru til meðferðar.Afleiðingar fíkniefnaneyslu eru flestum kunnar,hvers konar afbrot s.s.manndráp,rán og ofbeldi.Þá stefna neytendur heilsu sinni í voða og fjölskyldur búa við stöðugar áhyggjur og ógnanir.Sökum hinna víðtæku áhrifa sem ávana-bindandi efni valda neytendum og fjölskyldum þeirra á að hafa refingar þungar.Hinsvegar á Fangelsismálastofnun í samráði við Menntamála - og Heilbrigðismálaráðuneytið að hjálpa þessu fólki með öllum tiltækum ráðum að vinna bug á sínum alvarlegu vandamálum.


Spaugstofan fór ekki yfir nein siðferðismörk - það gerðu hins vegar Ólafur og Vilhjálmur.

Það voru eðlileg viðbrögð hjá Spaugstofunni að hafa hinn nýja borgarstj.í aðalhlutverki  þáttarins eins og hann í reynd hefur verið í fréttum alla s.l.viku.Hið skyndilega flug Ólafs úr borgarstjórn upp í hreiðrið hjá Vilhjálmi á 2 - 3 klst. og fá að launum borgarstjórastólinn og 80% af stefnuskrá Frjálslindafl.og óháðra er einsdæmi í sögu ísl.stjórnmála.

Fyrst hélt fólk að einhver bilun hefði átt sér stað í sálargangverki þessa forustumanna flokkanna eða um hreint gabb væri að ræða ,aðrir urðu lamaðir eins og í einhverju pólutísku Dauðahafi.Þegar menn sáu að ekki var um höfuðlausa sköpun að ræða heldur tvíhöfða gangverk,þá var eins og myrkur og ský dragi fyrir,fólkið mótmælti hástöfun á áhorfandapöllunum.

Var nokkuð að undra þó hugsjónamenn Spaugstofunnar kæmu þessari sérstöku uppákomu heim í stofu landsmanna.Þeir reyndu að lyfta þessum atburðum úr lágkúrunni á hærra og skemmtilegra plan .Hinn pólutíski vegvísir þeirra Ólafs og Vilhjálms er afar þröngur enda virðist hann byggist á yfirdrotnun og  valdasýki.


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband